Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Vinnumálastofnun Forsíða
Vinnumálastofnun Forsíða

Vinnumálastofnun

30. apríl 2026

Vélstjóri - Ægir Sjávarfang Ehf.

100%
Suðurnes

Ægir Sjávarfang óskar eftir að ráða vélstjóra í niðursuðuverksmiðju okkar í Grindavík. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf fyrir dugmikinn einstakling þar sem lögð er áhersla á fagmennsku, öryggi og stöðugan rekstur vinnslunnar.

Um starfið:
Sem vélstjóri gegnir þú lykilhlutverki við að tryggja hnökralausan rekstur framleiðslubúnaðar og lágmarka niðritíma. Þú vinnur náið með framleiðslu- og gæðastjóra til að styðja við skilvirka, örugga og vandaða vinnslu.

Helstu verkefni og ábyrgð:
• Fyrirbyggjandi viðhald allra véla og tækja í framleiðslu
• Gera viðhaldsáætlanir
• Umsjón með verktökum
• Bilanaleit og viðgerðir
• Tryggja að framleiðslustöðvun vegna bilana sé lágmörkuð
• Halda utanum viðhaldskrá og þjónustusögu allra véla og búnaðar
• Samstarf við framleiðslustjóra og gæðastjóra um tæknileg atriði sem tengjast framleiðslu, gæðum og öryggi
• Samvinna við framleiðsluteymi til að tryggja skilvirka vinnslu
• Stjórna uppsetningu nýrra véla og búnaðar.
• Umsjón með breytingum á framleiðslulínum
• Eftirlit með varahlutum og skráningu þeirra, pantanir
• Leita stöðugt leiða til að lækka viðhaldskostnað og auka endingartíma búnaðar

Menntunar og hæfniskröfur:
• Menntun í vélvirkjun eða rafvirkjun er kostur
• Reynsla af viðhalds- eða tæknistörfum er kostur
• Þekking á vélum, rafbúnaði og tækjabúnaði er æskileg
• Færni í mannlegum samskiptum
• Hæfni til að starfa í teymi
• Dugnaður, vinnusemi, fagmennska og jákvætt viðhorf

Vinnutími: 08:00 - 16:30

Við bjóðum samkeppnishæf starfskjör fyrir réttan aðila, sköffum bíl til umráða. Ekki er krafist búsetu í Grindavík.
Umsóknir og ferilskrár skulu berast á: robert@aegirseafood.is