Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Vinnumálastofnun Forsíða
Vinnumálastofnun Forsíða

Vinnumálastofnun

13. apríl 2026

Vallarstjóri - Golfklúbburinn Hamar

Norðurland eystra
100%
Sumarstarf
Tímabundið starf
Eures

Golfklúbburinn Hamar (GHD) óskar eftir að ráða vallarstjóra til starfa. Um er að ræða tímabundið starf yfir sumartímann þar sem vallarstjóri ber ábyrgð á daglegum rekstri, umhirðu og skipulagi Arnarholtsvallar í Svarfaðardal. Tímabil 1. maí - 30. september 2026þ
Yfirlit starfsins

Vallarstjóri ber ábyrgð á að völlurinn sé ávallt í góðu ásigkomulagi, að þjónusta við kylfinga sé til fyrirmyndar og að viðhald og framkvæmdir séu unnin faglega og í samræmi við markmið klúbbsins. Starfið felur í sér náið samstarf við stjórn GHD og aðra lykilaðila innan klúbbsins.
________________________________________
Helstu verkefni og ábyrgð
1. Umhirða og daglegt viðhald vallarins
• Daglegt eftirlit með ástandi brauta, flata, teiga, sandgryfja og annarra leiksvæða
• Sláttur, loftun, sáning, áburðargjöf og önnur grænræktarstörf
• Umsjón með vökva- og áveitukerfum og bilanaleit eftir þörfum
• Árstíðarbundnar framkvæmdir og undirbúningur fyrir opnun og lokun vallar

2. Skipulagning og stjórnun starfsmanna
• Dagleg stjórnun sumarstarfsfólks og annarra starfsmanna
• Skipulagning vinnutíma og verkefna
• Þjálfun nýrra starfsmanna í vélanotkun, verklagi og öryggisreglum

3. Umsjón með búnaði og vélum
• Viðhald og umsjón með sláttuvélum, dráttarvélum og öðrum tækjum
• Reglubundið viðhald, viðgerðir og skráning á búnaðarástandi
• Umsjón með birgðum (áburður, efni, verkfæri o.fl.)

4. Samstarf og upplýsingagjöf
• Gott upplýsingaflæði til stjórnar og annarra innan klúbbsins
• Samskipti við stjórn og mótanefnd varðandi mótahald, vinnuáætlanir og ástand vallar
________________________________________
Hæfniskröfur
• Menntun í grasvallafræðum er kostur
• Reynsla af umhirðu golfvalla eða sambærilegu starfi er mikilvæg
• Góð kunnátta í meðferð og viðhaldi vinnuvéla og garðyrkjuvéla
• Leiðtogahæfni og reynsla af verkstjórn er kostur
• Geta til að skipuleggja verkefni og vinna sjálfstætt
• Áhugi á golfi
________________________________________
Viðbótarkröfur
• Góð kunnátta í ensku
• Lágmarksþekking á íslensku
• Vinnuvélaréttindi (I réttindi – dráttarvélar og minni jarðvinnuvélar)
• Gilt bílpróf
________________________________________
Kjör
• Laun samkvæmt kjarasamningi Einingar/Iðju
• Virkur vinnutími: 7 klst. og 5 mín. á dag samkvæmt kjarasamningi
• Yfirvinna mögulega í boði

Nánari upplýsingar á: ghd@simnet.is

Umsóknarfrestur er til og með 13. apríl, 2026.
Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um að fylla út umsókn með ferilskrá í viðhengi hér: https://form.vinnumalastofnun.is/eures og setja "260324-07" í reitinn atvinnuekandi.