30. apríl 2026
Umönnun á hjúkrunarheimili - Mörk hjúkrunarheimili.
Mörk hjúkrunarheimili óskar eftir hressu og duglegu starfsfólki til að starfa með okkur við umönnun aldraðra.
Í boði er skemmtilegt og gefandi starf við umönnun aldraðra. Um er að ræða 100% starfshlutfall þar sem unnar eru blandaðar vaktir í góðum hóp starfsmanna.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Góðir samskiptahæfileikar og jákvæðni
- Starfsmaður þarf að hafa náð 18 ára aldri
- Stundvísi og metnaður í starfi
- Reynsla í umönnun er mikil kostur
- Góð íslenskukunnátta
Fríðindi í starfi:
- Aðgangur að heilsustyrk
- Stytting vinnuvikunnar
- Öflugt starfsmannafélag
- Greitt er eftir kjarasamningi Eflingar og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu.
Á Grundarheimilunum vinnur stór og samheldinn hópur starfsmanna að því að hlúa að öldruðum og sjúkum af alúð.
Vellíðan, virðing og vinátta eru höfð að leiðarljósi í samskiptum og lögð er áhersla á góðan vinnuanda, sjálfstæð vinnubrögð og heimilislegt umhverfi.
Nánari upplýsingar um starfið veitir:
Mannauðsdeild Grundarheimilanna: mannaudur@grund.is
Við hlökkum til að heyra í þér !