Fara beint í efnið
Vinnumálastofnun Forsíða
Vinnumálastofnun Forsíða

Vinnumálastofnun

1. maí 2026

Stuðningsfulltrúi - Borgarbyggð.

Vesturland
Hlutastarf
Tímabundið starf

Stuðningsfulltrúi í frístund á Hvanneyri

Við leitum eftir einstaklingum í skemmtilegt og skapandi starf með börnum í frístund Hvanneyri út skólaárið 2025-2026.

Markhópur frístundar eru börn á aldrinum 6-9 ára.

Í boði er hlutastarf þar sem vinnutíminn er frá 13.00/13:30 -16:00 alla virka daga, hægt að vinna frá tveimur upp í fimm daga vikunnar.

Unnið er samkvæmt gæðaviðmiðum í frístundarstarfi og leggjum við mikið uppúr lýðræðisþáttöku barna, vinnum í opnu starfi, klúbbum og sértæku hópastarfi.

Umsækjandi verður að hafa náð 18 ára aldri.

Helstu verkefni og ábyrgð
Leiðbeina börnum í leik og starfi
Aðstoð við skipulagningu á faglegu frístundarstarfi.
Samvinna og samráð við börn og annað samstarfsfólk.
Samskipti og samstarf við foreldra, starfsfólk skóla og aðra sem koma að starfi frístundar.
Menntunar- og hæfniskröfur
Mikilvægt að hafa áhuga á að starfa með börnum
Sýna frumkvæði, gleði og sjálfstæði í starfi og hafa góða færni í mannlegum samskiptum.
Reynsla af starfi með börnum er kostur.
Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Borgarbyggðar.
Góð íslenskukunnátta.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns eru hvattir til að sækja um.

Launakjör samkvæmt gildandi samningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf.

Öllum umsóknum verður svarað.

Starfssvið: Fjölskyldusvið

Starfshlutfall: Hlutastarf

Nánari upplýsingar veitir Hugrún Hulda, forstöðumaður frístundamála á netfanginu hugrun.gudjonsdottir@borgarbyggd.is