Fara beint í efnið
Vinnumálastofnun Forsíða
Vinnumálastofnun Forsíða

Vinnumálastofnun

19. ágúst 2026

Starfsmaður í verslun 100% - AK Pure Skin ehf.

100%
Höfuðborgarsvæðið

AK Pure Skin óskar eftir drífandi einstakling í fullt starf í verslun.
AK Pure Skin var stofnað árið 2019 og selur íslenskar húðvörur. Við opnuðum verslun við Suðurlandsbraut 10 í Reykjavík í júní á 2022 með því markmiðið að tengjast viðskiptavinum enn betur og miðla okkar ástríðu fyrir húðumhirðu. Erum núna að færa verslun okkar niður á Laugaveg.

Við leitum eftir ábyrgri manneskju sem getur unnið sjálfstætt og er til í að ganga í öll verk með bros á vör. Það er einnig mikilvægt að hafa góða skipulags hæfileika þegar kemur að því að halda utan um vörurnar og verslunina. Starfsfólk AK Pure Skin vinnur náið með eigendum og við leggjum mikinn metnað í að veita frábæra, persónulega og faglega þjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð:
•⁠ ⁠Söludrifinn aðili
•⁠ ⁠Veita viðskiptavinum persónulega og faglega þjónustu.
•⁠ ⁠Liðsinna viðskiptavinum um val á húðumhirðu og húðvörum.
•⁠ ⁠Svara almennum tölvupóstum.
•⁠ ⁠Önnur tilfallandi verkefni.

Menntunar- og hæfniskröfur:
•⁠ ⁠Reynsla af verslunar- og/eða þjónustustörfum er kostur.
•⁠ ⁠Áhugi á húðumhirðu.
•⁠ ⁠Rík þjónustulund og sölu gleði
•⁠ ⁠Jákvæðni, metnaður og framtakssemi
•⁠ ⁠Almenn tölvukunnátta (excel og word)
•⁠ ⁠Góð ensku kunnátta
•⁠ ⁠Vera reyk/veiplaus á vinnutíma

Fríðindi í starfi:
•⁠ ⁠Starfsmannaafsláttur af húðvörum AK Pure Skin.

Aldurstakmark 20 ára. | Greitt er samkvæmt launataxta VR.
Umsókn ásamt ferilskrá og kynningarbréfi.
Fyrir nánari upplýsingar er hægt að hafa samband í gegnum tölvupóstfangið akpureskin@akpureskin.is

Umsóknarfrestur er til og með 19. ágúst 2026.