19. mars 2026
Starfsmaður í sauðburð - Bjarki Byggir Ehf.
Staðsetning: Berufjörður, Djúpavogur. Ísland
Vantar starfmann í sauðburð sem hefur víðtæka reynslu og þekkingu á sauðburði og öðrum almennum landbúnaðarstörfum.
Um er að ræða tímabundið starf í 4–6 vikur fyrir réttan starfsmann.
Helstu verkefni:
• Aðstoð við sauðburð
• Eftirlit með ám og nýfæddum lömbum
• Almenn landbúnaðarstörf á búinu
• Önnur tilfallandi verkefni tengd sauðfjárbúskap
Hæfniskröfur:
• Menntun í búfræði eða víðtæk reynsla af sauðburðarstörfum og almennum landbúnaðarstörfum
• Geta til að vinna sjálfstætt
• Gild ökuréttindi eru skilyrði
Starfskjör:
• Laun samkvæmt kjarasamningi SGS og Bændasamtaka Íslands
• Vinnutími miðast við 8 klukkustundir á dag, með sveigjanlegum vinnutíma eftir þörfum
• Fæði og húsnæði í boði
Nánari upplýsingar veitir: berufjordur2@gmail.com
Áhugasamir vinsamlegast sækið um fyrir 19.03.2026 með því að fylla út rafræna umsókn hér https://form.vinnumalastofnun.is/eures og skráið númer starfsins "260306-11" í reitinn merktur "employer".