Fara beint í efnið
Vinnumálastofnun Forsíða
Vinnumálastofnun Forsíða

Vinnumálastofnun

2. júlí 2026

Starfsmaður í framleiðslu og prentvinnslu / Production and printing - Töff Socks ehf.

50%
Höfuðborgarsvæðið

Merkt.is leitar að jákvæðum, vandvirkum og tæknilega sinnuðum starfsmanni í 50% starf við framleiðslu, prentun og almenna bakvinnslu.

Við leitum að einstaklingi sem getur séð um daglega verklega vinnslu, undirbúning hönnunarskráa og framleiðslu á merktum vörum, fatnaði og gjafavörum.

Helstu verkefni

Starfið felur meðal annars í sér:

Undirbúning hönnunarskráa í Photoshop, Illustrator og/eða Affinity.
Uppsetningu efnis fyrir prentun, skurð og framleiðslu.
Prentun á fatnaði, vörum og ýmsum merktum hlutum.
Pressun á fatnaði og öðrum vörum.
Vinna við DTF, sublimation, UV DTF, vinyl, og laser
Almenn bakvinnsla í framleiðslu.
Frágangur pantana og gæðaskoðun.
Aðstoð við að halda vinnusvæði snyrtilegu og skipulögðu.
Önnur tilfallandi verkefni tengd framleiðslu.
Hæfniskröfur

Viðkomandi þarf að vera:

Vandvirkur og nákvæmur
Sjálfstæður í vinnubrögðum
Lausnamiðaður og jákvæður
Tæknilega sinnað/ur og fljót/ur að læra
Með gott auga fyrir útliti, staðsetningu og frágangi
Fær í tölvuvinnu og tilbúinn að vinna með hönnunarforrit
Stundvís og áreiðanleg/ur

Reynsla af Photoshop, Illustrator, Affinity, merkingu á fatnaðu eða sambærilegri framleiðslu er mikill kostur, en rétt hugarfar og vilji til að læra skiptir líka miklu máli.

Við bjóðum
50% starf
Fjölbreytt verkefni í skapandi framleiðsluumhverfi
Þjálfun í tækjum og vinnuferlum
Vinnu við persónulegar vörur, fyrirtækjamerkingar og sérpantanir
Góða aðstöðu og skemmtilegt starfsumhverfi

Nánari upplýsingar um starf og umsóknir má senda á netfangið: pall@merkt.is