Fara beint í efnið
Vinnumálastofnun Forsíða
Vinnumálastofnun Forsíða

Vinnumálastofnun

30. september 2026

Starfsmaður á verkstæði - APA ehf.

Suðurnes
100%

Vélvirki / Viðhaldsmaður á verkstæði

Airport Associates leitar að jákvæðum, áhugasömum og liðlegum starfsmanni til starfa á vel búnu verkstæði fyrirtækisins á Keflavíkurflugvelli. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf í öflugu starfsumhverfi þar sem öryggi, fagmennska og góð þjónusta eru í fyrirrúmi.

Helstu verkefni:
Almennt viðhald og viðgerðir á flugafgreiðslutækjum
Bílaviðgerðir og almennt viðhald ökutækja
Viðhald á verkfærum og búnaði verkstæðis
Önnur tilfallandi verkefni tengd rekstri verkstæðis
Hæfniskröfur:
Reynsla af viðhaldi og viðgerðum vélbúnaðar og/eða ökutækja
Þekking á tölvustýringum er kostur
Ökuréttindi (B-flokkur) eru skilyrði
Sjálfstæð og góð færni í íslensku og ensku, bæði í töluðu og rituðu máli
Frumkvæði, sjálfstæði og góðir samskiptahæfileikar
Hreint sakavottorð er skilyrði
Starfskjör og vinnutími:
Grunnlaun: 669.163 kr. á mánuði
Bifreiðastyrkur: 20.282 kr. á mánuði
Vinnutími:
Mánudaga til fimmtudaga: 08:00-17:00
Föstudaga: 08:00-12:00
Um Airport Associates

Airport Associates er sjálfstætt starfandi flugafgreiðslufyrirtæki með höfuðstöðvar á Keflavíkurflugvelli. Fyrirtækið veitir alhliða þjónustu við íslensk og erlend flugfélög, þar á meðal hleðslu og afhleðslu farms, innritun farþega, hleðslueftirlit, fraktafgreiðslu og ræstingarþjónustu.

Umsóknir

Sótt er um starfið á: https://jobs.50skills.com/airportassociates/is/42286

Nánari upplýsingar veitir: sigridur@airportassociates.com