Fara beint í efnið
Vinnumálastofnun Forsíða
Vinnumálastofnun Forsíða

Vinnumálastofnun

28. maí 2026

Starfsmaður á veitingastað / Kebab House 101 - Tajik 101 ehf.

Eures
100%
Höfuðborgarsvæðið

Kebab House 101 er framsækinn veitingastaður sem er þekktur fyrir ljúffengt kebab í miðbæ Reykjavíkur. Við leitum að jákvæðum og áreiðanlegum einstaklingi sem hefur áhuga á matargerð og getur unnið vel í krefjandi umhverfi. Starfið hentar öllum sem hafa áhuga á eldhús-, og afgreiðslustörfum og geta sinnt þeim verkefnum sem starfið krefst.

Helstu verkefni:
• Taka á móti pöntunum viðskiptavina og fylgja þeim eftir.
• Aðstoð við matreiðslu og daglegt starf í eldhúsinu.
• Undirbúningur fyrir næstu vaktir, þar á meðal að meta hráefnisþörf og undirbúa kjöt, grænmeti, og annað sem þarf fyrir næstu vakt.

Hæfniskröfur:
• Góð samskiptahæfni.
• Góð íslensku eða ensku kunnátta.
• Reynsla af asískri kebab matargerð og meðhöndlun er nauðsynleg ( t.d. doner, shawarma og falafel).
• Reynsla af pizzugerð er æskileg.

Um fulla vinnu er að ræða, en unnið er á vöktum frá 11:00-18:00, og helgarvaktir 20:00-05:00.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum Eflingar og SA.

Umsókn skal fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir því hvernig viðkomandi uppfyllir hæfnikröfur.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Zayniddin Shamsidin, zayniddin220601@gmail.com.

Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um að fylla út umsókn með ferilskrá í viðhengi hér: https://form.vinnumalastofnun.is/eures and put "260430-05" in the field for employer.

Umsóknarfrestur er til og með 28. maí, 2026