16. apríl 2026
Skrifstofustarf/aðstoðarmanneskja - Dýrahjálp Íslands, félag.
Dýrahjálp Íslands leitar drífandi og áhugasömum einstaklingi í 50-100% starf hjá félaginu. Um er að ræða starf sem heyrir undir framkvæmdastjóra félagsins og felur í sér ýmis störf og verkefni sem tengjast daglegum rekstri ásamt aðstoð við framkvæmdastjóra.
Starfsstöð er í 110 Reykjavík.
Dýrahjálp Íslands eru félagasamtök sem gæta hagsmuna gæludýra, meðal annars með því að taka við dýrum í neyð og hýsa þau á fósturheimilum og finna þeim framtíðarheimili. Félagið kemur einnig að ýmsum dýravelferðarmálum og vinnur almenning í landinu til fylgis og stuðnings við dýravernd.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Að sinna daglegum verkefnum sem koma á borð félagsins
Almenn skrifstofustörf
Halda utan um verkefni og samskipti í kringum þau
Samskipti við ýmsa aðila (fósturheimili, sjálfboðaliða o.fl.)
Önnur tilfallandi verkefni sem geta komið upp
Menntunar- og hæfniskröfur:
Stúdentspróf
Jákvæðni og samstarfshæfni
Lipurð í mannlegum samskiptum
Frumkvæði, skipulagshæfni og geta til að vinna sjálfstætt
Almenn góð tölvukunnátta
Góð ensku- og íslenskukunnátta
Að eiga auðvelt með að hafa yfirsýn á mörgum verkefnum
Nánari upplýsingar um starf má fá með því að senda tölvupóst á netfangið: Starf@dyrahjalp.is
Athugið að ráðið verður í starfið af atvinnuleysisskrá en um starfstengt vinnumarkaðsúrræði er að ræða skv. 3. gr. reglugerðar 935/2025 um vinnumarkaðsúrræði.
Please note that the job will be filled from the unemployment registry, as it is a labour market measure in accordance with Articles 3 of Regulation No. 935/2025 on labour market measures.
Umsóknarfrestur er til 16. 04. 2026