Fara beint í efnið
Vinnumálastofnun Forsíða
Vinnumálastofnun Forsíða

Vinnumálastofnun

20. október 2026

Sjúkraþjálfari - Sjúkrahúsið á Akureyri

100%
Norðurland eystra


Við leitum að sjúkraþjálfara í okkar góða hóp á Sjúkrahúsið á Akureyri (SAk). Um er að ræða 75-100% ótímabundna stöðu og er staðan laus nú þegar eða eftir nánara samkomulagi.

Sjúkraþjálfarar við Sjúkrahúsið á Akureyri starfa á bráðadeildum sjúkrahússins við Eyrarlandsveg og/eða á endurhæfingadeild. Vegna flutninga endurhæfingardeildar af Kristnesi verður nú annars vegar starfrækt legudeild endurhæfingar í húsnæði SAk á Eyrarlandsholti og hins vegar dag- og göngudeild utan spítalans. Þar mun fara fram þverfagleg endurhæfing á einstaklingsgrunni og/eða í hópum. Staðsetning starfs getur farið eftir áhugasviði umsækjenda.

Um er að ræða dagvinnu, vinnuvika starfsfólks í fullu starfi er nú 36 klst. Við það bætast stöku sinnum vaktir um helgar og á lögbundnum frídögum við bráðadeildir sjúkrahússins, sem greitt er aukalega fyrir og gefur aukna tekjumöguleika.

Starfið er fjölbreytt og býður upp á frábær tækifæri til að afla sér faglegrar og sérhæfðrar þekkingar og taka þátt í uppbyggingu dag- og göngudeildar á nýjum stað. Við tökum vel á móti nýju fólki og veitum góða aðlögun undir handleiðslu reyndra sjúkraþjálfara. Kjörið tækifæri fyrir reynslubolta sem og nýútskrifaða til að dýpka þekkingu og verða hluti af öflugri liðsheild.

Helstu verkefni og ábyrgð
Almenn vinna sjúkraþjálfara í þverfaglegu umhverfi

Fræðsla til sjúklinga og aðstandenda

Þverfaglegt samstarf innan deilda

Verkefni og ábyrgð eru í samræmi við reynslu

Þátttaka í faglegri þróun

Hæfniskröfur
Fullgilt próf í sjúkraþjálfun og íslenskt starfsleyfi

Við ráðningu verður lögð áhersla á faglega þekkingu, reynslu og áhuga, sjálfstæði í vinnubrögðum og hæfileika í samskiptum og samvinnu

Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu

Hreint sakavottorð

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag sjúkraþjálfara hafa gert.

Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.

Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.

Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.

Starfshlutfall er 75-100%

Nánari upplýsingar veitir
Ragnhildur Jónsdóttir

yfirsjúkraþjálfari

Tölvupóstur: ragnhildur@sak.is

Sími: 852-5608

Sækja um starf hér: https://island.is/starfatorg/x-0260be8b-c4ee-4c87-ba29-9ed083fd4e02
Umsóknarfrestur er til og með 20.10.2026