Fara beint í efnið
Vinnumálastofnun Forsíða
Vinnumálastofnun Forsíða

Vinnumálastofnun

30. júní 2026

Sjúkraliði / Healthcare assistants - Grund hjúkrunarheimili

100%
Höfuðborgarsvæðið
Tímabundið starf
Eures

Við á Grund hjúkrunarheimili viljum bæta við þann góða hóp sjúkraliða sem er starfandi við heimilið.

Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt þar sem við leggjum mikla áherslu á góða teymisvinnu.

Leitað er eftir áhugasömum sjúkraliða með faglegan metnað, góða samskiptahæfni og jákvætt viðmót. Vinnutími og starfshlutfall eftir samkomulagi, dagvinna möguleg.

Hæfniskröfur:
Íslenskt sjúkraliðaleyfi
Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi
Góðir samskiptahæfileikar og jákvæðni
Framhaldsnám æskilegt
Mjög góð íslenskukunnátta skilyrði

Greitt er eftir kjarasamningi Sjúkraliðafélags Íslands og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu.

Virðing, Vinátta og Vellíðan eru höfð að leiðarljósi í samskiptum og lögð er áhersla á góðan vinnuanda, sjálfstæð vinnubrögð og heimilislegt umhverfi.

Á Grundarheimilunum er unnið samkvæmt Eden hugmyndafræðinni. Þar vinnur stór og samheldinn hópur starfsmanna að því að hlúa að öldruðum af alúð.

Nánari upplýsingar um starfið veita:

Sigrún Faulk hjúkrunarframkvæmdastjóri
mussa@grund.is 530 6100

Theodóra Theodórsdóttir mannauðsstjóri
tedda@grund.is 530 6100