Fara beint í efnið
Vinnumálastofnun Forsíða
Vinnumálastofnun Forsíða

Vinnumálastofnun

29. maí 2026

Sjúkraliðar óskast til starfa / Nurses Assitants - Heilsuvernd Dvöl-Endurhæfing ehf.

Eures
100%
Höfuðborgarsvæðið

Sjúkraliðar óskast til starfa
Vilt þú vera með okkur í spennandi vegferð í nýju þjónustuúrræði fyrir aldraða í glæsilegri starfsstöð Heilsuverndar að Urðarhvarfi 16?

Heilsuvernd óskar eftir að ráða sjúkraliða til starfa. Ráðið er í stöðurnar frá og með apríl/maí 2026.

Heilsuvernd er ört stækkandi fyrirtæki í heilbrigðisþjónustu sem hefur sérhæft sig í heilsu- og vinnuverndarstörfum, heilsugæsluþjónustu og heilbrigðisþjónustu fyrir aldraða.

Við leitum að einstaklingum sem hafa jákvæðni og góð samskipti að leiðarljósi og eru tilbúnir að takast á við fjölbreytt verkefni í sterku teymi fagfólks undir merkjum Heilsuverndar. Heilsuvernd samstæðan er skipuð sérhæfðu og metnaðarfullu starfsfólki sem leggur áherslu á faglega og framúrskarandi þjónustu. Markmið okkar er að hafa jákvæð áhrif á lífsgæði fólks og efla heilbrigði og vellíðan. Því hver dagur er dýrmætur.

Helstu verkefni og ábyrgð:
- Að veita skjólstæðingum líkamlega, andlega og félagslega aðhlynningu
- Verkefni tengd almennri umönnun
- Þátttaka í þróun og umbótum
- Samskipti við aðstandendur þjónustuþega
- Stuðla að góðum starfsanda

Menntunar- og hæfniskröfur:
- Íslenskt sjúkraliðaleyfi
- Reynsla af starfi með öldruðum er æskileg
- Jákvætt viðhorf og hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði, jákvæðni og samstarfsvilji
- Góð samskipta- og skipulagshæfni
- Almenn tölvukunnátta.
- Góð íslenskukunnátta, bæði talað og skrifað mál

Umsóknarfrestur er til og með 29. maí 2026. Um fullt starf eða hlutastarf er að ræða eða samkvæmt samkomulagi.

Laun eru samvæmt kjarasamningum SLFí og SFV. Launaröðun og þrep fer eftir starfsreynslu í faginu og unnið er á vöktum.

Umsóknum skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf. Öllum umsóknum verður svarað. Ráðið er í störfin óháð kyni. Nánari upplýsingar veitir Hanna Guðlaugsdóttir framkvæmdastjóri mannauðs (hanna@hv.is).

Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um að fylla út umsókn með ferilskrá í viðhengi hér: https://form.vinnumalastofnun.is/eures and put "260408-10" in the field for employer.

ATH! Umsækjendur verða að hafa ríkisfang innan EES, EFTA-ríkjanna eða Færeyja eða gilt atvinnuleyfi á Íslandi. Staðfesting á atvinnuleyfi ÞARF að fylgja umsókn.