31. október 2026
Rafvirkjanemi - Pípuverk ehf.
Við leitum að áhugasömum einstaklingi til starfa við fjölbreytt rafvirkjaverk.
Hjá okkur starfa reynslumiklir sveinar og meistarar sem leggja áherslu á fagleg vinnubrögð, góða leiðsögn og miðlun þekkingar.
Starfið felst meðal annars í aðstoð við rafvirkja, uppsetningar, viðhald og önnur almenn rafvirkjaverk undir leiðsögn fagmanna.
Eiginleikar sem við leitum að:
- Stundvísi og áreiðanleiki
- Áhugi á rafvirkjun og vilji til að læra
- Dugnaður og góð vinnusemi
- Jákvætt viðhorf og frumkvæði
- Góð samskipti og hæfni til að vinna með öðrum
- Vandvirkni og ábyrgð í starfi
- Handlagni
Við skoðum einnig umsóknir frá einstaklingum sem hafa áhuga á rafvirkjun en hafa ekki enn hafið nám í faginu. Starfið getur verið gott tækifæri til að kynnast rafvirkjastarfinu og mögulega hvati til að hefja rafvirkjanám eða framhaldsnám.
Upplýsingar um starf og umsóknir má senda á netfangið: jon.rafvirki@gmail.com
Athugið að ráðið verður í starfið af atvinnuleysisskrá en um starfstengt vinnumarkaðsúrræði er að ræða skv. 3. gr. reglugerðar 935/2025 um vinnumarkaðsúrræði.