Fara beint í efnið
Vinnumálastofnun Forsíða
Vinnumálastofnun Forsíða

Vinnumálastofnun

27. maí 2026

Öryggis og umhverfisfulltrúi / HSE officer - Jarðboranir hf.

Eures
100%
Höfuðborgarsvæðið

Hefur þú brennandi áhuga á öryggismálum?

Jarðboranir leita að öflugum aðila til að sinna starfi öryggis- og umhverfisfulltrúa við borframkvæmdir.
Um er að ræða krefjandi og spennandi starf á framkvæmdasvæðum við djúpboranir eftir jarðhita.

Helstu hlutverk öryggis- og umhverfisfulltrúa eru eftirfarandi:
Umsjón með öryggis- og umhverfismálum á borstað.
Stuðla að öruggu starfsumhverfi og sjá til þess að öll verk séu unnin í samræmi við verklagsreglur félagsins.
Framkvæmd á ÖHU úttektum.
Miðlun upplýsinga á daglegum vaktaskiptafundum og vikulegum fundum með verkkaupa.
Skráning slysa- og atvikatilkynninga auk þátttöku í gerð atvikaskýrsla.
Vera leiðandi og hvetjandi í öryggis- og umhverfismálum á borstað.
Öryggis- og umhverfisfulltrúi vinnur náið með Gæða-, öryggis-, og umhverfisstjóra Jarðborana, verkefnastjórum og verkstjórum.

Hæfniskröfur:
Reynsla af störfum við öryggis- og umhverfismál er æskileg.
Reynsla af störfum við verklegar framkvæmdir er æskileg.
Góð almenn tölvukunnátta.
Gott vald á íslensku og ensku.
Almenn ökuréttindi.
Vinnuvélaréttindi, lyftarar
Hæfni í mannlegum samskiptum.
Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og hæfileiki til að starfa í hópi.

Einungis er um að ræða vaktavinnu.- 12 tíma vaktir
Laun eru samkvæmt kjarasamningum SA og Framsýn

Umsóknarfrestur er til og með 27 maí 2026.

Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um að fylla út umsókn með ferilskrá í viðhengi hér: https://form.vinnumalastofnun.is/eures and put "260421-02" in the field for employer.
Nánari upplýsingar um starf má fá með því að senda tölvupóst á netfangið: jons@jardboranir.is

ATH! Umsækjendur verða að hafa ríkisfang innan EES, EFTA-ríkjanna eða Færeyja eða gilt atvinnuleyfi á Íslandi. Staðfesting á atvinnuleyfi ÞARF að fylgja umsókn.

Í anda jafnréttisstefnu okkar hvetjum við öll þau sem uppfylla hæfniskröfur til að sækja um, óháð kyni.