Fara beint í efnið
Vinnumálastofnun Forsíða
Vinnumálastofnun Forsíða

Vinnumálastofnun

8. júní 2026

Matreiðslumaður - Chef - PL Veitingar ehf.

100%
Suðurnes
Eures

Matreiðslumaður óskast til starfa.

PL veitingar ehf í Reykjanesbæ leita að metnaðarfullum og drífandi matreiðslumanni til starfa hjá.

Við leggjum áherslu á vönduð vinnubrögð, hreinlæti og góða samvinnu starfsfólks. Það er skilyrði að umsækjandi hafi reynslu og þekkingu á að vinna með asíska rétti, þar með talið víetnamska, og geti unnið undir álagi á álagstímum.


Helstu verkefni og ábyrgð:

* Undirbúningur hráefnis og matreiðsla.

* Matreiðsla asískra og víetnamskra rétta.

* Gerð matseðla og innkaup.

* Fylgja reglum um hreinlæti og meðferð matvæla. Frágangur og þrif í eldhúsi.

* Þátttaka í daglegum rekstri eldhúss.

* Samstarf við annað starfsfólk.



Menntunar- og hæfniskröfur:

* Menntun og sveinspróf í matreiðslu.

* Reynsla af asískri/víetnamskri matargerð.

* Reynsla af störfum í eldhúsi.

* Sjálfstæði og skipulag í vinnubrögðum.

* Ábyrgðarkennd og stundvísi.

* Jákvætt viðmót og góð samskiptahæfni.

* Hreinlæti og snyrtimennska.

* Gild ökuréttindi B.

* Íslenskukunnátta er kostur, enskukunnátta er skilyrði.


Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Matvís. Um 100% starf er að ræða.

Við bjóðum upp á góðan starfsanda í skemmtilegu starfsumhverfi.

Áhugasamir vinsamlegast fyllið út umsókn og sendið ásamt ferilskrá með upplýsingum um fyrri störf og reynslu: https://form.vinnumalastofnun.is/eures, og skráið nr. 260511-08 í reitinn Employer fyrir 8. júní 2026.

Umsóknarfrestur er til og með 8. júní 2026.