Fara beint í efnið
Vinnumálastofnun Forsíða
Vinnumálastofnun Forsíða

Vinnumálastofnun

6. nóvember 2026

Matreiðslumaður - Chef - PL Veitingar ehf.

100%
Suðurnes

Matreiðslumaður óskast til starfa

Við leitum að metnaðarfullum og drífandi matreiðslumanni til starfa hjá okkur.
Við leggjum áherslu á vönduð vinnubrögð, hreinlæti og góða samvinnu starfsfólks. Einnig er mikilvægt að umsækjandi hafi áhuga á asískri matarmenningu og geti unnið undir álagi á álagstímum.

Helstu verkefni og ábyrgð
* Undirbúningur hráefnis og matreiðsla.
* Matreiðsla asískra og víetnamskra rétta.
* Gerð matseðla og innkaup.
* Fylgja reglum um hreinlæti og meðferð matvæla. Frágangur og þrif í eldhúsi.
* Þátttaka í daglegum rekstri eldhúss.
* Samstarf við annað starfsfólk.

Menntunar- og hæfniskröfur
* Menntun og próf í matreiðslu.
* Reynsla af asískri/víetnamskri matargerð.
* Reynsla af störfum í eldhúsi.
* Sjálfstæði og skipulag í vinnubrögðum.
* Ábyrgðarkennd og stundvísi.
* Jákvætt viðmót og góð samskiptahæfni.
* Hreinlæti og snyrtimennska.

Við bjóðum upp á góðan starfsanda í skemmtilegu starfsumhverfi.
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Matvís eða viðeigandi stéttarfélags.

Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og upplýsingar um fyrri störf og reynslu.
Ef þú hefur sérstakan áhuga á starfinu, þá er þér velkomið að hafa samband við okkur á olsen-olsen@simnet.is.
Umsóknarfrestur er til og með 6. nóvember 2026.