30. júní 2026
Mannauðs og launafulltrúi / HR and Payroll Specialist - Grund hjúkrunarheimili
Grundarheimilin óska eftir mannauðs og launafulltrúa
Grundarheimilin óska eftir metnaðarfullum og jákvæðum einstakling í mannauðs og launadeild fyrirtækisins.
Mannauðs og launadeild Grundarheimilanna vinnur að því að stuðla að jákvæðri vinnustaðamenningu og vellíðan í starfi hjá starfsfólki.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Launavinnsla og skráning, frágangur launagagna, skil á skilagreinum til lífeyrissjóða, stéttarfélaga og opinberra aðila.
Eftirfylgni með skráningum í Mytimeplan.
Túlkun kjarasamninga og eftirlit með framkvæmd þeirra.
Leiðbeiningar til starfsfólks um kjaramál.
Vinna að jákvæðri vinnustaðamenningu.
Þátttaka í ráðningarferli starfsmanna.
Styðja við endurmenntun og starfsþróun starfsfólks í samvinnu við stjórnendur.
Önnur tilfallandi launa- og mannauðsmál.
Menntunar - og hæfniskröfur:
Rík þjónustulund, frumkvæði og samskiptahæfni er skilyrði.
Þekking og reynsla af launavinnslu er kostur
Þekking á kjarasamningum er kostur.
Nákvæmni og öguð vinnubrögð.
Góð íslensku- og enskukunnátta í töluðu og rituðu máli er kostur.
Góð alhliða tölvukunnátta er skilyrði.
Fríðindi í starfi:
Aðgangur að heilsustyrk.
Stytting vinnuvikunnar.
Öflugt starfsmannafélag.
Greitt er eftir kjarasamningi Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu og viðeigandi stéttarfélags.
Á Grundarheimilunum vinnur stór og samheldinn hópur starfsmanna að því að hlúa að öldruðum og sjúkum af alúð. Vellíðan, Virðing og Vinátta eru höfð að leiðarljósi í samskiptum og lögð er áhersla á góðan vinnuanda, sjálfstæð vinnubrögð og heimilislegt umhverfi.
Umsóknarfrestur til og með 30 júní 2026
Nánari upplýsingar um starfið veitir
Mannauðsstjóri:
Theodóra Theodórsdóttir
tedda@grund.is