30. september 2026
Logsuðumaður / Welder - Stjörnublikk ehf.
Stjörnublikk leitar að vandvirkum, metnaðarfullum og lærðum logsuðumanni til starfa í 100% fullt starf.
Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf í góðu starfsumhverfi þar sem lögð er áhersla á fagmennsku, gæði og góða samvinnu.
Hæfniskröfur:
Sveinspróf í málmsuðu eða sambærileg menntun.
Reynsla af logsuðu æskileg.
Gilt ökuskírteini (B-réttindi).
Sjálfstæð og vönduð vinnubrögð.
Góð samskipta- og samstarfshæfni.
Tungumálakunnátta: Enska; Íslenska og/eða Portúgalska
Við bjóðum:
100% starf hjá traustu fyrirtæki.
Fjölbreytt og áhugavert starf.
Góðan starfsanda og faglegt vinnuumhverfi.
Tækifæri til að þróast í starfi.
Áhugasamir eru hvattir til að senda umsókn og ferilskrá á netfangið: antonio@stjornublikk.is
Umsóknarfrestur er til og með 30 september 2026