Fara beint í efnið
Vinnumálastofnun Forsíða
Vinnumálastofnun Forsíða

Vinnumálastofnun

24. maí 2026

Leikskólakennari/leiðbeinandi - Hveragerðisbær

100%
Suðurland

Leikskólinn Óskaland óskar eftir öflugum deildarstjórum, kennurum og leiðbeinendum til starfa í gróskumiklum leikskóla.
Leikskólinn Óskaland er níu deilda leikskóli með pláss fyrir 152 börn og er staðsettur við Finnmörk 1, 810 Hveragerði í grónu hverfi þar sem stutt er í fjölbreytta skógi vaxna náttúru. Árið 2025 voru fjórar nýjar deildir teknar í notkun auk glæsilegrar lóðar.

Einkunnarorð Óskalands eru: Leikur - lífsgleði - lærdómur.

Í Óskalandi er sjálfsprottinn leikur aðal kennslutækið auk þess sem unnið er með grenndar - og útikennslu, Vináttuverkefni Barnaheilla, Hugarfrelsi og Lubba.

Leitað er að metnaðarfullum, skapandi og jákvæðum deildarstjórum, leikskólakennurum og/eða leiðbeinendum með góða færni í mannlegum samskiptum.

Um er að ræða bæði stöður til frambúðar og afleysingu í fæðingarorlofi með möguleika á áframhaldandi starfi. Viðkomandi þurfa að vera tilbúinir til að taka þátt í uppeldi og menntun barna í nánu samstarfii við stjórnendur og hafa gott vald á íslenskri tungu.

Umsækjendur til að hafa hreint sakavottorð.

Fríðindi í starfi: Forgangur í leiksókólapláss, frítt fæði, stytting vinnuvikunnar og sundkort í sundlaugina í Laugaskarði. Umsóknarfrestur er til 23.maí nk.

Nánari upplýsingar veita Gunnvör Kolbeinsdóttir skólastjóri og Eva Hrönn Jónsdóttir aðst.skólastjóri í síma 4834139 eða á netfangið oskaland@hveragerdi.is
Starfið hentar öllum kynjum. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags.