9. ágúst 2026
Lagerstjóri - Mobility ehf.
Mobility ehf leitar að öflugum starfsmanni á lager og í verslun.
Langar þig að starfa í fjölbreyttu og skemmtilegu umhverfi? Við leitum að áreiðanlegum og duglegum starfsmanni til að sinna störfum á lager og í verslun.
Um 70% starf er að ræða með vinnutíma frá kl. 11:00 - 16:00.
Helstu verkefni:
• Lagerstörf og vörumeðhöndlun.
• Afgreiðsla og þjónusta við viðskiptavini.
• Tilfallandi akstur og afhendingar á beinskiptum sendibíl.
Við leitum að einstaklingi sem:
• Er með gilt bílpróf.
• Getur ekið beinskiptum sendibíl (án meiraprófs).
• Er skipulagður og vinnur vel sjálfstætt.
• Er stundvís og áreiðanlegur.
• Er heiðarlegur og samviskusamur.
• Á auðvelt með samskipti og leggur metnað í góða þjónustu.
Ef þú hefur áhuga á fjölbreyttu starfi í góðum hópi, þá viljum við gjarnan heyra frá þér.
Vinsamlegast hafið samband með því að senda umsókn á netfangið: siggi@mobility.is
Umsóknarfrestur er til og með 9. ágúst 2026.