Fara beint í efnið
Vinnumálastofnun Forsíða
Vinnumálastofnun Forsíða

Vinnumálastofnun

31. maí 2026

Kokkur - Hótel Arnarstapi ehf.

Vesturland
100%
Vaktavinna
Eures

Starfslýsing – Matreiðslumaður

Staðsetning: Hótel Arnarstapi Starfshlutfall: 100% unnið er á 2-2-3 vöktum, greitt skv. kjarasamningum SGS.

Við leitum að metnaðarfullum og áreiðanlegum matreiðslumanni til starfa á Hótel Arnarstapa.
Starfið felur í sér undirbúning og framreiðslu á mat fyrir hótelgesti, þar á meðal hádeigisverð og kvöldverð, með áherslu á gæði, fagmennsku og góða upplifun gesta.

Helstu verkefni:
Undirbúningur og matreiðsla á réttum samkvæmt matseðli • Framsetning og framreiðsla matar • Þátttaka í þróun matseðla í samvinnu við yfirkokk • Tryggja gæði hráefna og rétt vinnubrögð við meðhöndlun þeirra • Halda vinnusvæði hreinu og fylgja reglum um hreinlæti og matvælaöryggi • Vinna samkvæmt verkferlum og staðli hótelsins • Samvinna við annað starfsfólk eldhúss og þjónustu


Hæfniskröfur:
Menntun eða reynsla í matreiðslu
Sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfni
Hæfni til að vinna undir álagi
Góð samskiptahæfni og liðsheild
Þekking á hreinlætis- og matvælareglum
Jákvætt viðmót og þjónustulund


Við bjóðum • Lifandi og fjölbreytt vinnuumhverfi í fallegu umhverfi • Tækifæri til að hafa áhrif á matseðil og þróun • Góða vinnuaðstöðu og samheldinn hóp • Samkeppnishæf kjör samkvæmt samkomulagi.

Vaktavinna, þar með talin kvöld- og helgarvinna
Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst

Frekari upplýsingar veitir: hjalti@arnarstapicenter.is