10. september 2026
Kaffihús / Barista - Intrepidus ehf.
Við hjá kaffihúsinu í Borgartúni 29 erum að stækka hópinn okkar og leitum að þremur öflugum starfsmönnum til að ganga til liðs við okkur sem fyrst.
Störfin sem eru í boði:
Vanur Kaffibarþjónn : Við leitum að manneskju sem hefur brennandi áhuga á kaffi, býr yfir reynslu og þekkingu á kaffigerð (barista) og getur tryggt að sérhver bolli sé fullkominn.
Afgreiðslu- og þjónustufólk : Við leitum að tveimur starfsmönnum með reynslu af þjónustustörfum á veitinga- eða kaffihúsum. Starfið felur í sér afgreiðslu, þjónustu við viðskiptavini og almennt viðhald á sal.
Hæfniskröfur:
Reynsta af sambærilegum störfum.
Rík þjónustulund og jákvæðni
Góð kunnátta í ensku er nauðsynleg.
Lágmarkskunnátta í íslensku er æskileg.
Stundvísi, áreiðanleiki og hæfni til að vinna undir álagi.
Umsóknarfrestur er til og með 10. september 2026.
Umsókn ásamt ferilskrá má senda á netfangið: svavar@svas.is.