Fara beint í efnið
Vinnumálastofnun Forsíða
Vinnumálastofnun Forsíða

Vinnumálastofnun

31. maí 2026

Íþróttafræðingur / aðstoðarmaður í sjúkraþjálfun - Grund Hjúkrunarheimili

Hlutastarf
Höfuðborgarsvæðið
80%

Grund hjúkrunarheimili er fjölbreyttur og lifandi vinnustaður þar sem starfa 300 manns.
Áhersla er lögð á góðan starfsanda, sterka liðsheild og hvetjandi starfsumhverfi.

Sjúkraþjálfun Grundar hjúkrunarheimilis leitar að íþróttafræðingi eða aðstoðarmanni í starf í sjúkraþjálfun frá 10.ágúst n.k. Starfið er fjölbreytt og krefjandi þar sem lögð er áhersla á góða teymisvinnu. Vinnutími og starfshlutfall eftir samkomulagi.
Greitt er eftir kjarasamningi viðeigandi stéttarfélags og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu.

Hæfniskröfur:
Góð íslenskukunnátta
Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi
Góðir samskiptahæfileikar og jákvæðni

Nánari upplýsingar veitir Guðrún Gestsdóttir sjúkraþjálfari: gudrung@grund.is
Umsóknarfrestur er til og með 31. Maí 2026

Á Grundarheimilunum vinnur stór og samheldinn hópur starfsmanna að því að hlúa að öldruðum af alúð. Vellíðan, virðing og vinátta eru höfð að leiðarljósi í samskiptum og lögð er áhersla á góðan vinnuanda, sjálfstæð vinnubrögð og heimilislegt umhverfi. Unnið er eftir Eden hugmyndafræðinni.