Fara beint í efnið
Vinnumálastofnun Forsíða
Vinnumálastofnun Forsíða

Vinnumálastofnun

1. ágúst 2026

Iðjuþjálfi - Grund hjúkrunarheimili

100%
Höfuðborgarsvæðið

Mörk hjúkrunarheimili óskar eftir metnaðarfullum og áhugasömum iðjuþjálfa til starfa.

Um er að ræða fjölbreytt og lifandi starf fyrir einstakling sem býr yfir hugmyndaauðgi, frumkvæði og góðum samskiptahæfileikum.

Greitt er eftir kjarasamningi Iðjuþjálfafélags Íslands og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu.

Hæfnikröfur

BSc próf eða sambærilegt próf í iðjuþjálfun
Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi
Íslenskt starfsleyfi sem iðjuþjálfi
Góðir samskiptahæfileikar og jákvæðni
Íslenskukunnátta skilyrði
Fríðindi í starfi

Stytting vinnuvikunnar.
Aðgangur að heilsustyrk.
Öflugt starfsmannafélag

Á Grundarheimilunum er unnið samkvæmt Eden hugmyndafræðinni. Þar vinnur stór og samheldinn hópur starfsmanna að því að hlúa að öldruðum af alúð.

Vellíðan, virðing og vinátta eru höfð að leiðarljósi í samskiptum og lögð er áhersla á góðan vinnuanda, sjálfstæð vinnubrögð og heimilislegt umhverfi.


Með umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf. Öll kyn eru hvött til að sækja um starfið. Gott er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Nánari upplýsingar um starfið veitir:

Theodóra Theodórsdóttir mannauðsstjóri, tedda@grund.is

Umsóknarfrestur er til 01.08.2026.

Við hlökkum til að heyra frá þér!