17. mars 2026
Húðflúrari - Fine line tattoo artist - 4 List ehf.
Starf í boði – Húðflúrari (Fineline sérhæfing)
Stofan leitar að reynslumiklum húðflúrara sem sérhæfir sig í fineline húðflúrum og stíl.
Um er að ræða spennandi tækifæri fyrir metnaðarfullan fagaðila sem getur tekið að sér bæði stór og smá fineline verkefni og leggur áherslu á nákvæmni og gæði.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Framkvæmd fineline húðflúra af ýmsum stærðum og gerðum
Ráðgjöf og góð samskipti við viðskiptavini
Vönduð vinnubrögð og fagleg framkoma
Vinna með mismunandi húðgerðir af öryggi og fagmennsku
Hæfniskröfur:
Reynsla af húðflúrun með áherslu á fineline tækni góð reynsla er kostur
Góð þekking á fínustu nálum og vinnu á allar gerðir húðar
Sjálfstæður, ábyrgur og skipulagður einstaklingur
Góð samskiptafærni og þjónustulund
Reglusemi og heilbrigður lífsstíll
Notar ekki ólögleg vímuefni
Full vinna ( 40klst á viku), góður sveigjanleiki í vinnutíma – geta unnið á mismunandi tímum dags
Laun eru samkvæmt kjarasamningi VR/SA
Umsóknarfrestur er til og með 16 mars, 2026.
Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um að fylla út umsókn með ferilskrá í viðhengi hér: https://form.vinnumalastofnun.is/eures and put "260209-11" in the field for employer.
ATH! Umsækjendur verða að hafa ríkisfang innan EES, EFTA-ríkjanna eða Færeyja eða gilt atvinnuleyfi á Íslandi. Staðfesting á atvinnuleyfi ÞARF að fylgja umsókn.