20. júní 2026
Garðsláttur - Leó Verktaki ehf.
100%
Norðurland eystra
Starfsmaður óskast í garðslátt
Við leitum að starfsmanni til starfa við garðslátt og tengd verkefni.
Kröfur:
Gild ökuréttindi.
Réttindi í flokki C1 og C1E.
Hæfni til að aka Ford F450.
Um starfið:
Starfið felst aðallega í garðslætti.
Vinnutími er yfirleitt frá 08:00 til 17:00, en stundum lengur.
Einstaka sinnum er unnið um helgar.
Mikil vinna er í boði þegar veður er gott.
Athugið:
Vinnan er mjög háð veðri. Ekki er unnið við garðslátt í rigningu eða mikilli bleytu. Ef rigning veldur töfum getur þurft að vinna lengri daga eða fleiri daga í kjölfarið þegar veður leyfir.
Laun:
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Einingar-Iðju.
Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband fyrir frekari upplýsingar hér: leoverktaki@gmail.com