Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Vinnumálastofnun Forsíða
Vinnumálastofnun Forsíða

Vinnumálastofnun

31. maí 2026

Deildarstjóri II/Head of department at Nursing and residential home - Hjallatún, Dvalarheimili

Eures
100%
Suðurland


Hjúkrunarfræðingur / Deildarstjóri II – Í Vík í Mýrdal (90–100%)

Viltu starfa sem hjúkrunarfræðingur í fallegu og fjölskylduvænu samfélagi á Suðurlandi?
Hjúkrunar- og dvalarheimilið **Hjallatún í Vík í Mýrdal** leitar að hjúkrunarfræðingi í starf **deildarstjóra II** í 90–100% starf frá **1. september 2026 eða eftir samkomulagi**.

Hjallatún er hjúkrunar- og dvalarheimili þar sem lögð er áhersla á faglega þjónustu, góð samskipti og jákvætt starfsumhverfi. Fjölbreytt og krefjandi starf þar sem tækifæri gefst til að taka þátt í þróun hjúkrunar og þjónustu við íbúa.

Vík í Mýrdal er líflegt og fallegt samfélag á Suðurlandi þar sem náttúran er rétt við dyrnar. Þar er stutt í fjöll, fjöru og fjölbreytta útivist, auk þess sem samfélagið er samheldið og fjölskylduvænt.

Helstu verkefni

* Aðstoð við stjórnun og rekstur hjúkrunarheimilis
* Staðgengill hjúkrunarforstjóra eftir þörfum
* Skipulag hjúkrunar og hjúkrunarmeðferða
* Skipulagning vakta og verkstjórn
* Fræðsla og stuðningur við starfsfólk
* Eftirlit með gæðum hjúkrunar
* Ráðgjöf til íbúa og aðstandenda

Starfið felur í sér **dagvaktir, helgarvaktir og bakvaktir eftir samkomulagi**.

Hæfniskröfur

* Hjúkrunarfræðimenntun frá viðurkenndri menntastofnun
* Starfsleyfi frá Embætti landlæknis eða réttur til að sækja um slíkt
* Góð samskiptahæfni og frumkvæði í starfi
* Góð tölvukunnátta
* Reynsla af stjórnun er kostur
* Reynsla af RAI-mælitækinu er kostur
* Góð enskukunnátta
* Umsækjandi þarf að tala íslensku eða vera tilbúinn að læra hana

**Alþjóðlegar umsóknir eru velkomnar.**

Við bjóðum

* Fjölbreytt og ábyrgðarmikið starf
* Gott starfsumhverfi og samheldinn starfsmannahóp
* Tækifæri til að hafa áhrif á þróun hjúkrunar
* Aðstoð við að finna húsnæði eftir samkomulagi
* Laun samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga


Umsóknir sendist á hjallatun@vik.is

Með umsókn skulu fylgja upplýsingar um menntun, starfsleyfi, sakavottorð og fyrri störf.

Nánari upplýsingar veitir

Guðrún Berglind Jóhannesdóttir, hjúkrunarforstjóri
📧 hjallatun@vik.is
📞 487-1348

Áhugasamir vinsamlegast sækið um fyrir 31.05.2026 með því að fylla út rafræna umsókn hér https://form.vinnumalastofnun.is/eures og skráið númer starfsins "260316-03" í reitinn merktur "employer".