Fara beint í efnið
Vinnumálastofnun Forsíða
Vinnumálastofnun Forsíða

Vinnumálastofnun

9. nóvember 2026

Chef - Vietnamese Cuisine - Down Town ehf.

Eures
100%
Vesturland

Down Town ehf. óskar eftir að ráða einn kokk með reynslu af víetnamskri matargerð í ótímabundið 100% starf á Arnarstapa.

Helstu verkefni:

* Matreiðsla og undirbúningur víetnamskra rétta.
* Þátttaka í uppsetningu, skipulagningu og undirbúningi eldhúss fyrir opnun staðarins.
* Undirbúningur hráefna og skipulagning daglegrar framleiðslu.
* Þróun og samræming matseðils.
* Eftirlit með gæðum, skammtastærðum og framsetningu rétta.
* Frágangur og þrif ásamt því að fylgja reglum um hreinlæti og matvælaöryggi.
* Samvinna við annað starfsfólk og önnur almenn störf í eldhúsi.

Hæfniskröfur:

* Sannanleg reynsla af matreiðslu víetnamskra rétta.
* Reynsla af starfi í atvinnueldhúsi.
* Þekking á hreinlæti og matvælaöryggi.
* Hæfni til að vinna sjálfstætt og í samstarfi við aðra.
* Stundvísi, áreiðanleiki og góð vinnubrögð.
* Umsækjandi þarf að geta átt samskipti á íslensku eða ensku.
* Formleg menntun í matreiðslu er kostur en ekki skilyrði.

Starfið er 40 klukkustundir á viku og unnið er á vöktum samkvæmt vaktaskrá. Gera þarf ráð fyrir dag-, kvöld- og helgarvöktum.

Grunnlaun eru 680.000 kr. á mánuði fyrir 100% starf, auk vaktaálags, yfirvinnu og annarra greiðslna samkvæmt kjarasamningi Starfsgreinasambands Íslands (SGS) og Samtaka atvinnulífsins (SA) vegna veitinga-, gisti-, þjónustu- og greiðasölustaða, afþreyingarfyrirtækja og hliðstæðrar starfsemi 2024–2028.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf eins fljótt og auðið er, samkvæmt samkomulagi og að loknu ráðningarferli. Ef atvinnuleyfis er krafist getur viðkomandi ekki hafið störf fyrr en leyfið hefur verið veitt.

Umsækjendur skulu senda ferilskrá, upplýsingar um starfsreynslu og meðmæli, ef þau liggja fyrir, á winehf@gmail.com.