14. október 2026
Bílamerkingar - Fjölprent ehf.
Fjölprent leitar að öflugum starfsmanni til liðs við sig.
Við leitum að vandvirkum, samviskusömum og vinnusömum einstaklingi til starfa við bílamerkingar ásamt fjölbreyttum og tilfallandi verkefnum í skiltagerð.
Um er að ræða spennandi starf hjá vaxandi fyrirtæki þar sem enginn dagur er eins.
Helstu verkefni:
Bílamerkingar og uppsetning filma
Tilfallandi verkefni í skiltagerð
Frágangur og undirbúningur verkefna
Önnur almenn verkefni tengd framleiðslu og uppsetningu
Hæfniskröfur:
Bílpróf og BE-réttindi er kostur
Góð kunnátta í íslensku og/eða ensku
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Hæfni til að vinna bæði sjálfstætt og í teymi
Vandvirkni, stundvísi og jákvætt viðmót
Um Fjölprent Fjölprent er vaxandi fyrirtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu og uppsetningu á meðal annars fánum, filmum, skiltum og bílamerkingum.
Starfshlutfall og kjör
Vinnutími er frá kl. 08:00 til 16:00 virka daga
Laun og kjör samkvæmt kjarasamningi Eflingar og SA
Áhugasamir umsækjendur eru hvattir til að senda umsókn og ferilskrá á netfangið johannes@fjolprent.is.
Umsóknarfrestur er til og með 14 október 2026.