Fara beint í efnið
Vinnumálastofnun Forsíða
Vinnumálastofnun Forsíða

Vinnumálastofnun

21. maí 2026

Bifvélavirki/Vélvirki/Mechanics/Mechanical Technicians - VR-5 ehf.

Eures
100%
Höfuðborgarsvæðið

Vélrás leitar að reyndum bifvélavirkjum og/eða vélvirkjum
Vélrás (VR-5 ehf.) óskar eftir að ráða reynda bifvélavirkja og/eða vélvirkja til starfa á öflugu og vel útbúnu verkstæði fyrirtækisins að Klettagörðum 12 í Reykjavík.
Hjá Vélrás starfar samhentur hópur sérfræðinga sem þjónustar stærstu aðila landsins í rekstri atvinnubifreiða. Áhersla er lögð á fagmennsku, skilvirkni og framúrskarandi þjónustu.

Helstu verkefni
• Viðhald og viðgerðir á atvinnubifreiðum (vörubílar, rútur o.fl.)
• Greining á bilunum og bilanaleit
• Samstarf við verkstjóra og aðra starfsmenn
• Almenn verkstæðisvinna ásamt sérhæfðum verkefnum

Hæfniskröfur
• Reynsla sem bifvélavirki og/eða vélvirki
• Þekking á atvinnubifreiðum er mikill kostur
• Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
• Frumkvæði og góð hæfni í teymisvinnu

Við bjóðum
• Fjölbreytt og krefjandi starf
• Sterkt og faglegt vinnuumhverfi
• Tækifæri til faglegrar þróunar og sérhæfingar
• Laun samkvæmt kjarasamningum FIT og SA

Um er að ræða fullt starf, virka daga frá kl. 08:00–18:00, með möguleika á yfirvinnu á kvöldin og um helgar.

Umsóknarfrestur er til og með 21 maí 2026.

Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um að fylla út umsókn með ferilskrá í viðhengi hér: https://form.vinnumalastofnun.is/eures and put "260427-10" in the field for employer.

ATH! Umsækjendur verða að hafa ríkisfang innan EES, EFTA-ríkjanna eða Færeyja eða gilt atvinnuleyfi á Íslandi. Staðfesting á atvinnuleyfi ÞARF að fylgja umsókn.