1. júní 2026
Bifvélavirki/Automotive mechanic - Unicars, Bílaþjónusta SLF.
Viltu vinna við viðgerðir, dekkjaverkstæði og bílabjörgun á stórkostlegum stað á Suðurlandi? Þá er þetta tækifærið fyrir þig!
Hæfniskröfur og reynsla:
- Starfið krefst reynslu af viðgerðum og viðhaldi ökutækja.
- Umsækjandi skal búa yfir faglegu vinnulagi, jákvæðu viðhorfi og fullnægjandi samskiptahæfni til að sinna starfinu í daglegum rekstri.
- Umsækjandi skal hafa getu til að vinna sjálfstætt og skipulega undir álagi, fylgja verkferlum og tryggja öryggi við störf á verkstæði.
- Umsækjandi skal hafa gilt ökuskírteini, að lágmarki B-flokk. Ökuskírteini í C/CE flokki telst kostur.
- Starfið krefst kunnáttu í notkun tölvubúnaðar til lestrar og greiningar ökutækja, þar á meðal greiningu bilanakóða og notkun viðeigandi greiningartækja.
- Umsækjandi þarf að hafa reynslu af vinnu í rafkerfum ökutækja, geta lesið, túlkað og unnið eftir rafkerfisteikningum.
- Kostur er að umsækjandi hefur þekkingu og reynslu af CAN-Bus kerfum og samskiptanetum ökutækja.
- Kostur er að umsækjandi hafi reynslu af bilanagreiningum og greiningu tæknilegra vandamála.
- Reynsla af viðgerðum og þjónustu rafbíla og rafknúinna ökutækja telst kostur.
Formleg menntun:
- Formleg menntun er ekki skilyrði fyrir starfinu, en starfsreynsla í faginu nauðsynleg. Menntun og/eða réttindi sem bifvélavirki teljast kostur
Við bjóðum:
✅ Fjölbreytt og spennandi verkefni
✅ Samheldið, vinalegt teymi
✅ Aðstoð við húsnæði ef þarf
✅ Líf í náttúruparadís
Helstu verkefni: Viðhald, bilanagreining, rafmagnsvinna, dekkjaþjónusta og vegaþjónusta 🚙
Við leitum að einstaklingi með:
✔️ Reynsla í viðgerðum (kostur)
✔️ Jákvætt viðhorf og góða samskiptahæfni
✔️ Skipulag og sjálfstæði í vinnubrögðum
✔️ Bílpróf (B-próf skilyrði, C/CE kostur)
Tungumálakunnátta:
- Enska, Nauðsynleg - Íslenska kostur
🕘 Vinnutími: Mán–Fim 9-17, Fös 9-13 + bakvaktir eftir plani.
Launakjör:
-Laun eru greidd samkvæmt gildandi kjarasamningi milli Starfsgreinasambands Íslands (SGS) og Samtaka atvinnulífsins (SA).
Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um að fylla út umsókn með ferilskrá í viðhengi hér: https://form.vinnumalastofnun.is/eures og setja "260130-09" í reitinn atvinnuekandi.
Vinsamlegast heimsækið vefsíðu fyrirtækis: https://www.facebook.com/unicars.is til að sjá frekari upplýsingar.
Umsóknarfrestur er til 1. júní 2026
Nánari upplýsingar á uni@unicars.is