3. júní 2026
Afgreiðsla - Dalabyggð
Leitum að frekari starfskröftum í nýju íþróttamiðstöðina í Búðardal fyrir álagstíma í sumar.
Gert er ráð fyrir hlutastarfi, vaktavinnu sem getur farið fram fyrir/eftir hádegi, um helgar eða á kvöldin eftir álagspunktum.
Helstu verkefni:
Afgreiðsla og þjónusta við gesti íþróttamiðstöðvar.
Almenn þrif og ræstingar innanhúss og á laugarsvæði.
Halda húsnæði og aðkomu að því snyrtilegu.
Önnur tilfallandi verkefni.
Ekki er gert ráð fyrir að viðkomandi sinni sundlaugargæslu, þjálfaðir sundlaugarverðir vinna á staðnum við gæslu og eftirlit.
Skilyrði að viðkomandi geti bjargað sér sjálfur á íslensku og hafi a.m.k. lágmarks enskukunnáttu til að geta afgreitt.
Möguleiki á lægri/hærri starfsprósentu og styttra/lengra vinnutímabili þegar reynsla er komin á aðsókn. Hafið samband við tengilið fyrir frekari upplýsingar.
Tengiliður: Ísak Sigfússon lýðheilsufulltrúi isak@dalir.is s. 4304700