24. september 2026
Aðstoðarmaður í þjálfun - Mörk hjúkrunarheimili
Mörk hjúkrunarheimili er fjölbreyttur og lifandi vinnustaður þar sem starfa rúmlega 200 manns.
Áhersla er lögð á góðan starfsanda, sterka liðsheild og hvetjandi starfsumhverfi.
Leitað er eftir aðstoðarmanni í þjálfun hjá Mörk hjúkrunarheimili, starfið er fjölbreytt og krefjandi þar sem lögð er áhersla á góða teymisvinnu.
Um er að ræða dagvinnu og starfshlutfall er eftir samkomulagi.
Greitt er eftir kjarasamningi viðeigandi stéttarfélags og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu.
Hæfniskröfur
- Góð íslenskukunnátta.
- Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi.
- Góðir samskiptahæfileikar og jákvæðni.
Fríðindi í starfi
- Öflugt starfsmannafélag.
- Aðgangur að heilsustyrk.
- Stytting vinnuvikunnar.
Á Grundarheimilinum vinnur stór og samheldinn hópur starfsmanna að því að hlúa að öldruðum af alúð.
Vellíðan, virðing og vinátta eru höfð að leiðarljósi í samskiptum og lögð er áhersla á góðan vinnuanda, sjálfstæð vinnubrögð og heimilislegt umhverfi.
Unnið er eftir Eden hugmyndafræðinni.
Nánari upplýsingar um starfið veitir
María Guðnadóttir, deildarstjóri þjálfunar.
maria.gudnadottir@morkin.is