26. maí 2026
Aðstoðarmaður á verkstæði / Workshop Assistant - VR-5 ehf.
Vélrás leitar að aðstoðarmanni á verkstæði
Vélrás (VR-5 ehf.) óskar eftir að ráða aðstoðarmann á verkstæði fyrirtækisins að Klettagörðum 12 í Reykjavík.
Um er að ræða fjölbreytt og hagnýtt starf þar sem viðkomandi vinnur náið með verkstjóra og tekur virkan þátt í daglegum verkefnum verkstæðisins.
Helstu verkefni
• Almenn þrif og umhirða verkstæðis
• Létt viðhald á bifreiðum
• Sérverkefni við bifreiðar, t.d. teppalagnir og létt smíðavinna í samstarfi við vélvirkja
• Aðstoð á lager
• Sendiferðir og önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
• Reynsla og grunnþekking á viðhaldi bifreiða er skilyrði
• Gilt bílpróf (ökuskírteini B)
• Skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Jákvætt viðmót og vilji til að takast á við fjölbreytt verkefni
Við bjóðum
• Fjölbreytt starf í lifandi vinnuumhverfi
• Laun í samræmi við kjarasamninga SGS og SA – launaflokkur 6
Vinnutími er frá 08:00–18:00, með möguleika á meiri vinnu á kvöldin og um helgar.
Umsóknarfrestur er til og með 26 maí 2026.
Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um að fylla út umsókn með ferilskrá í viðhengi hér: https://form.vinnumalastofnun.is/eures and put "260427-08" in the field for employer.
ATH! Umsækjendur verða að hafa ríkisfang innan EES, EFTA-ríkjanna eða Færeyja eða gilt atvinnuleyfi á Íslandi. Staðfesting á atvinnuleyfi ÞARF að fylgja umsókn.