29. maí 2026
Aðstoðarfólk í eldhús - Heilsuvernd Dvöl-Endurhæfing ehf.
Vilt þú vera með okkur í spennandi vegferð í nýju þjónustuúrræði fyrir aldraða í glæsilegri starfsstöð Heilsuverndar að Urðarhvarfi 16?
Heilsuvernd óskar eftir að ráða aðstoðarfólk í eldhús til starfa. Ráðið er í stöðurnar frá og með apríl/maí 2026.
Heilsuvernd er ört stækkandi fyrirtæki í heilbrigðisþjónustu sem hefur sérhæft sig í heilsu- og vinnuverndarstörfum, heilsugæsluþjónustu og heilbrigðisþjónustu fyrir aldraða.
Við leitum að einstaklingum sem hafa jákvæðni og góð samskipti að leiðarljósi og eru tilbúnir að takast á við fjölbreytt verkefni í sterku teymi fagfólks undir merkjum Heilsuverndar. Heilsuvernd samstæðan er skipuð sérhæfðu og metnaðarfullu starfsfólki sem leggur áherslu á faglega og framúrskarandi þjónustu. Markmið okkar er að hafa jákvæð áhrif á lífsgæði fólks og efla heilbrigði og vellíðan. Því hver dagur er dýrmætur.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Aðstoð við almenn eldhússtörf eftir þörfum hverju sinni
- Aðstoðar við frágang vöru og þrif í eldhúsi
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Reynsla af störfum í eldhúsi er æskileg
- Reynsla og áhugi á teymisvinnu
- Jákvætt viðhorf og hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði, jákvæðni og samstarfsvilji
- Góð samskipta- og skipulagshæfni
- Góð íslenskukunnátta, bæði talað og skrifað mál
Umsóknarfrestur er til og með 29. maí 2026. Um fullt starf eða hlutastarf er að ræða eða samkvæmt samkomulagi.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum Eflingar og SFV. Launaröðun og þrep fer eftir starfsreynslu í faginu og unnið er á vöktum
Umsóknum skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf. Öllum umsóknum verður svarað. Ráðið er í störfin óháð kyni. Nánari upplýsingar veitir Hanna Guðlaugsdóttir framkvæmdastjóri mannauðs (hanna@hv.is).
Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um að fylla út umsókn með ferilskrá í viðhengi hér: https://form.vinnumalastofnun.is/eures and put "260408-11" in the field for employer.
ATH! Umsækjendur verða að hafa ríkisfang innan EES, EFTA-ríkjanna eða Færeyja eða gilt atvinnuleyfi á Íslandi. Staðfesting á atvinnuleyfi ÞARF að fylgja umsókn.