Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Vinnumálastofnun Forsíða
Vinnumálastofnun Forsíða

Vinnumálastofnun

9. apríl 2026

Aðhlynning / Nursing Home - Skógarbær,hjúkrunarheimili

Höfuðborgarsvæðið
Hlutastarf
Vaktavinna
Eures

Ert þú samviskusamur og drífandi einstaklingur í leit að skemmtilegu og spennandi framtíðarstarfi? Langar þig að starfa við að gera líf annarra innihaldsríkara og hafa raunveruleg áhrif í vinnunni? Þá erum við mögulega að leita að þér!

Hrafnista Skógarbæ leitar að öflugu starfsfólki í fjölbreytt umönnunarstörf. Viðkomandi myndi bera ábyrgð á Namaste á deildinni og því mikilvægt að viðkomandi þekki til þeirrar hugmyndarfræði.

Um 60-90% starf er að ræða, vaktavinna ( dagvaktir, kvöldvaktirog næturvaktir)

Menntunar og hæfniskröfur:
- Er a.m.k. 18 ára
- A.m.k. árs starfsreynsla í aðhlynningu á hjúkrunarheimili á Íslandi
- Góð íslenskukunnátta (a.m.k. C1)
- Reynsla að hópstjórastöðu á hjúkrunarheimili
- Handbær þekking á Namaste hugmyndarfræðinni og kostur er ef viðkomandi hefur haft umsjón á slíkum verkefnum inni á deild
- Kostur ef viðkomandi er í sjúkraliðanámi
- Kostur ef viðkomandi hefur klárað lyfjafræðslu á Hrafnistu eða öðru íslensku hjúkrunarheimili
- Getur tekið næturvaktir

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Eflingar og SFV.

Umsóknarfrestur er til og með 9 apríl, 2026.

Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um að fylla út umsókn með ferilskrá í viðhengi hér: https://form.vinnumalastofnun.is/eures and put "260317-01" in the field for employer.

Nánari upplýsingar um starf má fá með því að senda tölvupóst á netfangið: freyja.runarsdottir@hrafnista.is

Hrafnista rekur sjö hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu og í Reykjanesbæ. Þau eru Laugarás, Sléttuvegur, Skógarbær, Boðaþing, Ísafold, Hraunvangur og Nesvellir.

Markmið Hrafnistu er að veita framúrskarandi þjónustu til þess að íbúar og aðrir þjónustuþegar upplifi öryggi, traust og vellíðan. Til að styðja við þetta markmið vinnur Hrafnista eftir hugmyndafræði sem lýsir hvaða upplifun, menningu og tilfinningu við viljum skapa bæði fyrir þjónustuþega og starfsfólk. Hugmyndafræðin er hjartað í starfseminni en samhliða er unnið að verkefnum sem ætlað er að bæta starfsumhverfið og þróa þjónustuna.

– Einkunnarorð okkar eru að við vinnum á heimili íbúa, þeir búa ekki á vinnustaðnum okkar -

Hrafnista er símalaust heimili. Með símalausum heimilum leggjum við áherslu á aukið öryggi og bætta þjónustu við íbúa, aðstandendur og aðra þjónustuþega.

Ef þú vilt vinna á vinnustað þar sem áherslur eru m.a. öflugur mannauður, framúrskarandi samskipti, þróun á þjónustu og þar sem nýting og þróun á þjónustueflandi verkfærum eru í brennidepli þá viljum við endilega heyra frá þér.