Um umboðsmann skuldara
Hlutverk umboðsmanns skuldara er að gæta hagsmuna og réttinda fólks í fjárhagsvanda.
UMS hefur milligöngu um samskipti og samninga við kröfuhafa með hagsmuni einstaklinga að leiðarljósi.
UMS veitir fólki sem er í verulegum skulda- og greiðsluvanda endurgjaldslausa aðstoð við að fá yfirsýn á fjármál sín og leita leiða til lausna.
UMS veitir ráðgjöf og fræðslu um fjármál heimila og aðstoðar við samninga um greiðsluaðlögun
UMS útbýr framfærsluviðmið og uppfærir þau reglulega.
UMS tekur á móti erindum og ábendingum frá borgurum varðandi galla á lánastarfsemi og kemur þeim á framfæri við viðeigandi aðila.