Tryggingastofnun stígur öll níu skrefin
21. september 2026
Tryggingastofnun hefur innleitt kjarnaþjónustur Stafræns Íslands og er fjórða stofnunin til að ljúka öllum stafrænu skrefunum, á eftir Samgöngustofu, Sjúkratryggingum og Sýslumönnum. Viðurkenningar fyrir Stafræn skref voru afhentar á ráðstefnunni Tengjum ríkið þann 17. september.

Stafrænu skrefin eru hvatningarverðlaun fyrir opinbera aðila sem nýta sameiginlegar lausnir Stafræns Íslands til að byggja upp stafræna þjónustu fyrir notendur. Skrefin eru alls níu og táknræn fyrir kjarnaþjónusturnar sem standa opinberum aðilum til boða: Stafræna pósthólfið, innskráningar- og umboðskerfið, Ísland.is appsins, Umsóknakerfið, Mínar síður á Ísland.is, Straumurinn (X-Road), vefur innan Ísland.is, Þjónustukerfi og AI aðstoð
Mikilvægar framfarir
Tryggingastofnun er ein stærsta þjónustustofnun landsins en hlutverk hennar er að annast ýmiskonar greiðslur úr almannatryggingakerfinu og vegna ýmiskonar félagslegrar aðstoðar. Stofnunin greiðir meðal annars í hverjum mánuði til tæplega 77 þúsund einstaklinga sem rétt eiga á ellilífeyri, örorkulífeyri eða sjúkra- og endurhæfingargreiðslum.
Í fyrra afgreiddi stofnunin tæplega 33 þúsund erindi, ráðgjafar tóku rúmlega 78 þúsund símtöl og 22 þúsund viðtöl fóru fram í þjónustumiðstöð TR. Stofnunin hefur verið í miklum umbóta- og breytingafasa að undanförnu, ekki aðeins með innleiðingu stafrænu lausnanna heldur einnig stórri kerfisbreytingu sem var eitt stærsta umbótaverkefni í almannatryggingum í áratugi þegar nýtt örorku- og endurhæfingakerfi tók gildi síðastliðið haust.
Innleiðing allra níu skrefanna er mikilvægur liður í að gera þjónustu Tryggingastofnunar einfaldari og aðgengilegri fyrir afar fjölbreyttan hóp notenda.
Viðurkenningar ársins 2026
Alls tóku fulltrúar þriggja opinberra aðila við viðurkenningum vegna stafrænna skrefa á Tengjum ríkið í ár. Forstjóri Tryggingastofnunar, Huld Magnúsdóttir, tók við viðurkenningu enda hafa þau nú stigið öll skrefin níu, en fyrir hönd Landspítalans komu Björn Jónsson og Adeline Tracz á svið og tóku við viðurkenningum fyrir sjö skref. Þá hlaut Vinnumálastofnun viðurkenningu fyrir sex skref en fyrir þeirra hönd mætti Gísli Davíð Karlsson.
Staðan nú
Alls hafa nú 23 opinberir aðilar stigið fimm eða fleiri Stafræn skref.
Níu skref
Tryggingastofnun
Samgöngustofa
Sjúkratryggingar
Sýslumenn
Átta skref
Fjársýsla ríkisins
Vinnueftirlit ríkisins
Sjö skref
Embætti landlæknis
Landspítali
Lögreglan
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun
Sex skref
Háskóli Íslands
Þjóðskrá Íslands
Útlendingastofnun
Vinnumálastofnun
Fimm skref
Átta opinberir aðilar hafa stigið fimm Stafræn skref:
Sjúkrahúsið á Akureyri
Skatturinn
Umhverfis- og orkustofnun
Ríkissaksóknari
Vegagerðin
Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála
Fiskistofa
Náttúruhamfaratrygging Íslands.
