Sérfræðingar í Zendesk óskast
29. júní 2026
Þjónustukerfi Ísland.is fyrir opinbera aðila

Þjónustukerfi Ísland.is er ein af kjarnavörum Stafræns Íslands og er í dag nýtt af fjölmörgum opinberum aðilum sem sameiginlegt þjónustukerfi. Kerfið byggir á þjónustulausninni Zendesk og einfaldar móttöku og afgreiðslu erinda, bætir yfirsýn og rekjanleika og veitir verðmæta tölfræði sem styður við betri þjónustu og stöðugar umbætur.
Yfir 40 stofnanir og opinberir aðilar vinna nú í kerfinu með góðum árangri. Innleiðingin hefur meðal annars stuðlað að samræmdari þjónustu, betri eftirfylgni með erindum, auknu gagnsæi í þjónustuferlum og betri yfirsýn yfir álag og afköst. Jafnframt hefur kerfið auðveldað stofnunum að greina þróun á fyrirspurnum og hafa þau gögn verið nýtt til að bæta þjónustu við almenning.
Samþætting við aðrar lausnir
Zendesk er jafnframt samþætt öðrum lausnum Stafræns Íslands. Kerfið er meðal annars samþætt við Umsóknarkerfi Ísland.is og nýta margar stofnanir Zendesk sem bakenda fyrir umsóknir sem berast í gegnum Ísland.is. Einnig hefur Zendesk verið tengt við Stafrænt pósthólf þar sem opinberir aðilar geta sent skjöl og átt tvíhliða samskipti við einstaklinga og fyrirtæki beint í gegnum pósthólfið.
Aukin sjálfvirkni, bætt þjónusta
Kerfið býður einnig upp á öfluga sjálfvirknivæðingu og gervigreindarlausnir sem geta sjálfvirknivætt stóran hluta þjónustuferla. Með gervigreind er meðal annars hægt að svara algengum fyrirspurnum, aðstoða starfsfólk við afgreiðslu erinda, leiðbeina notendum og flýta afgreiðslu án þess að draga úr gæðum þjónustunnar. Nokkrar stofnanir hafa þegar hafið þessa vegferð með góðum árangri og nýta gervigreind til að bæta þjónustu, stytta afgreiðslutíma og auka afköst. Gert er ráð fyrir að þessi þróun muni hafa veruleg áhrif á hvernig opinber þjónusta verður veitt á komandi árum.
Útboð á ráðgjöf í haust
Til að styðja enn betur við þessa þróun mun Stafrænt Ísland í haust bjóða út ráðgjafarþjónustu á sviði Zendesk. Leitað verður að ráðgjöfum sem hafa sérþekkingu á innleiðingu, rekstri og kerfisstjórn Zendesk og geta stutt opinbera aðila við að nýta kerfið sem best.
Gerð verður krafa um að ráðgjafar hafi Zendesk Support Administrator Expert-vottun frá Zendesk. Stafrænt Ísland hvetur því alla sem hafa áhuga á að veita slíka ráðgjöf að afla sér vottunarinnar sem fyrst. Hafir þú áhuga á að fylgjast með útboðinu í haust getur þú skráð þig á sérstakan póstlista og við upplýsum þig þegar útboðið er opnað.
