Fara beint í efnið
Stafrænt Ísland Forsíða
Stafrænt Ísland Forsíða

Stafrænt Ísland

Nýr rammasamningur, ný verkefni

19. maí 2026

Nýr rammasamningur Stafræns Íslands tók gildi nýverið og af því tilefni var landsliði Íslands í hugbúnaðarþróun, teymunum okkar, boðið til stefnumótandi viðburðar þar sem farið var yfir helstu markmið, áherslur og verkefnin fram undan.

Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, setti tóninn í upphafi fundar og minnti okkur á hversu langt við erum komin og af hverju Stafrænt Ísland skiptir máli. Á eftir tóku við kynningar frá teymi Stafræns Íslands um árangurinn til þessa, framkvæmd samningsins, gögn og heildararkitektúr, og kjarnaþjónusturnar sem mynda grunninn að Ísland.is. Í kjölfarið fóru fram vinnustofur með ólíkum þemum þar sem farið var á dýptina og kallað eftir endurgjöf um hvað mætti bæta.

Enn frekari stafvæðing

Verkefnin fram undan eru mörg og fjölbreytt og tilgangur þeirra alltaf að bæta opinbera þjónustu með stafvæddum hætti. Farið var yfir helstu verkefni ársins þar sem til dæmis er stefnt að stafvæðingu margra þjónustuferla, nýtingu gervigreindar til að bæta þjónustu við almenning, kortlagningu gagna hins opinbera ásamt því að Mínar síður á Íslandi verða nýtt heimili stafrænna heilbrigðisupplýsinga.

Langhlaup

Að einfalda líf fólks og auka hagkvæmni hins opinbera með notkun á staðlaðri, öruggri og leiðandi tækni er langhlaup. Við erum heppin að hafa aðgang að rúmlega 120 sérfræðingum sem tryggja að við getum hlaupið hratt, stafvætt þjónustu hins opinbera enn frekar, fækkað skrefum, sparað tíma og veitt almenningi betri þjónustu. Þessir sérfræðingar sem mynda 10 vefteymi og 10 alhliðateymi koma frá 13 fyrirtækjum sem saman skapa allar þessar stafrænu lausnir sem mynda þennan mikla ávinning.

Það er okkur mikilvægt að hitta fólkið í teymunum við upphaf nýs samnings, setja andlit á nöfn og skerpa saman á vinnulaginu sem hefur reynst okkur svo vel. Fram undan eru fjölbreytt og stór verkefni sem munu hafa bein áhrif á einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir.

„Krafturinn í teymunum okkar og samvinnu þeirra er mikill þegar við stefnum að sameiginlegri sýn og róum öll í sömu átt. Við erum afskaplega spennt fyrir áframhaldandi samstarfi og bjóðum nýja aðila velkomna í samfélagið okkar, enda fjölmörg stór verkefni fram undan sem munu skila hagræðingu og enn betri þjónustu. Örum breytingum í tækni fylgja nýjar áskoranir sem við leysum í sameiningu, sem eiga að geta hjálpað okkur að þjóna íslensku samfélagi enn betur.“ segir Birna Íris Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Stafræns Íslands.

Fylgstu með því nýjasta

Skráðu þig á póstlista Stafræns Íslands og fylgstu með því nýjasta í stafrænni opinberri þjónustu.