Nýr rammasamningur tekur gildi
15. apríl 2026
Niðurstaða þverfaglegs rammasamningsútboðs Stafræns Íslands hefur verið staðfest. Rammasamningur er því kominn á við 10 alhliðateymi og 10 vefteymi.

Mynd/Stjórnarráðið
Alhliðateymi | Vefteymi |
|---|---|
Hugsmiðjan | Hugsmiðjan |
„Við fögnum því að niðurstaða sé komin í málið en ferlið er búið að vera bæði langt og lærdómsríkt. Niðurstaðan skilar okkur bæði áframhaldandi samstarfi með öflugum teymum og svo bjóðum við ný teymi velkomin í samfélagið. Við horfum bjartsýn fram á veginn og hlökkum til að takast á við þau verkefni sem framundan eru, kanna enn frekar möguleika okkar á því að nýta gervigreind í okkar hugbúnaðarþróun og halda áfram að einfalda líf fólks,“ segir Birna Íris Jónsdóttir framkvæmdastjóri Stafræns Íslands.
Áhersla á þekkingu
Rammasamningur Stafræns Íslands virkar þannig að aðilar á einkamarkaði bjóða fram krafta sína og sérfræðiþekkingu í tvær tegundir teyma, alhliðateymi (e. full stack team) og vefteymi (e. web team). Valin teymi taka síðan þátt í fjölbreyttum þróunarverkefnum og stafvæðingu hins opinbera í samstarfi við Stafrænt Ísland.
Þetta var í þriðja sinn sem þessi háttur var hafður á en aðferðafræðin, að bjóða fram þekkingu en ekki í tiltekið verk, hefur reynst árangursrík leið í opinberum innkaupum og hafa opinberir innkaupaaðilar erlendis frá meðal annars sýnt ferlinu áhuga.
