Fara beint í efnið
Stafrænt Ísland Forsíða
Stafrænt Ísland Forsíða

Stafrænt Ísland

Mikilvægt er að sannreyna stafræn ökuskírteini

15. október 2026

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu greindi í gær frá rannsókn á sölu falsaðra stafrænna skilríkja til ungmenna. Stafrænt Ísland vill af því tilefni árétta nokkur atriði.

Öryggi er í fyrirrúmi á Ísland.is

Ekki var brotist inn í kerfi Ísland.is. Rannsókn lögreglu lýtur að appi sem líkir eftir útliti Ísland.is appsins og er ætlað að blekkja. Það er aðeins til ein útgáfa af Ísland.is appinu sem má finna í App Store og Google Play Store öllum að kostnaðarlausu.

Stafræn þjónusta sem allir landsmenn nota verður alltaf skotmark óprúttinna aðila. Hvort sem það er með fölsuðum öppum, vefsíðum eða tölvupóstum. Við þróun lausna Ísland.is er öryggi í fyrirrúmi og vinnur Stafrænt Ísland náið með sérfræðingum í netöryggi.

Sannreynum stafræn ökuskírteini

Stafrænt ökuskírteini er jafngilt hefðbundnu ökuskírteini hér á landi og er gefið út af ríkislögreglustjóra í gegnum Ísland.is á grundvelli reglugerðar nr. 830/2011 um ökuskírteini. Hægt er að sannreyna stafræn ökuskírteini með skanna í Ísland.is appinu en skanninn er opinn öllum og sannreynir á öruggan hátt að skírteinið sé ósvikið og gilt.

Stafrænt Ísland vill hvetja alla aðila sem skoða skírteini hjá öðrum að skanna þau til að staðfesta réttleika þeirra. Nánari upplýsingar um skannann má finna hér.

Við hvetjum foreldra og forráðamenn til að kynna sér frétt Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu þar sem finna má frekari upplýsingar um málið og leiðbeiningar um hvað skuli gera ef barn hefur sett upp hið falsaða app.

Fylgstu með því nýjasta

Skráðu þig á póstlista Stafræns Íslands og fylgstu með því nýjasta í stafrænni opinberri þjónustu.