Fara beint í efnið

Notendaskilmálar fyrir Réttindagátt

Um er að ræða skilmála sem gilda um notkun og aðgang að Réttindagátt Sjúkratrygginga. Skilmálar þessir taka gildi gagnvart notanda þegar viðkomandi hefur samþykkt þá.

  1. Notkun Réttindagáttar

    1. Réttindagátt er „mínar síður“ fyrir einstaklinga sem eiga í samskiptum við Sjúkratryggingar vegna málefna sinna.

    2. Tilgangur Réttindagáttar er að miðla upplýsingum og gögnum er varða réttindi og greiðslur frá Sjúkratryggingum með öruggum hætti. Einnig til að notendur geti sent Sjúkratryggingum gögn og fyrirspurnir með öruggum hætti.

  2. Innskráning í Réttindagátt

    1. Við innskráningu í Réttindagátt er notuð innskráningarþjónusta Ísland.is.

    2. Ef notandi verður á einhvern hátt var/vör við að óviðkomandi aðili hafi komist yfir framangreindar upplýsingar, skal notandi hafa strax samband við útgáfuaðila rafrænna skilríkja og óska eftir að viðkomandi skilríkjum sé lokað til þess að koma í veg fyrir að þau/hann sé(u) misnotuð af óviðkomandi aðilum í Réttindagátt.

    3. Vinsamlegast kynntu þér vel skilmála Ísland.is sem hægt er að nálgast á heimasíðu þeirra.

  3. Skyldur notanda

    1. Notandi skuldbindur sig til að nota Réttindagáttina þannig að notkun brjóti ekki í bága við ákvæði þessara skilmála.

    2. Notandi er ábyrgur fyrir því að notendaupplýsingar hans, þar á meðal tölvupóstfang og símanúmer, séu ávallt rétt skráð í Réttindagátt.

    3. Notandi er ábyrgur fyrir efni og innihaldi skjala sem viðkomandi sendir til Sjúkratrygginga. Ef um er að ræða upplýsingar sem eiga uppruna sinn hjá öðrum en notanda ber viðkomandi ábyrgð á réttleika þeirra.

    4. Réttur notanda til að fá aðgang að og nota Réttindagátt er bundinn kennitölu og er notanda ekki heimilt að flytja þann rétt til annars manns eða lögaðila.

    5. Notandi ber að gera nauðsynlegar varúðarráðstafanir til að tryggja persónubundna öryggisþætti við innskráningu og notkun Réttindagáttar.

  4. Flokkar upplýsinga

    1. Í Réttindagátt þinni er að finna eftirfarandi upplýsingar, í heild eða að hluta, um þín málefni:

      1. Notendaupplýsingar: Nafn, kennitala, heimilisfang, netfang, símanúmer.

      2. Viðskiptaupplýsingar: Bankaupplýsingar, rafræn skráning á ráðstöfun persónuafsláttar (skattkorts).

      3. Afgreiðslubréf, ákvarðanir, greiðsluskjöl og viðskiptayfirlit í tengslum við umsóknir/greiðsluþátttöku m.a. vegna slysatrygginga, hjálpartækja og næringarefna, lyfjakostnaðar, sjúkraþjálfunar, tannlæknakostnaðar, læknismeðferðar innanlands, læknismeðferðar erlendis, sjúklingatryggingar, sjúkradagpeninga, ferðakostnaðar innanlands.

      4. Greiðsluseðlar og greiðsluyfirlit vegna greiðsluþátttökukerfis fyrir heilbrigðisþjónustu.

      5. Lyfjaskírteini, greiðslustaða og lyfjagreiðslureiknivél vegna lyfjagreiðslukerfis.

      6. Skráning tannlæknis og heimilislæknis.

      7. Evrópska sjúkratryggingakortið.

      8. Upplýsingar um sjúkratryggingu.

      9. Málsgögn í tengslum við einstök mál/umsóknir sem þú hefur óskað eftir að fá send í Réttindagáttina.

  5. Notkun tengiliðaupplýsinga

    1. Sjúkratryggingar nota netföng og símanúmer sem skráð eru í Réttindagátt eða á umsóknum eða öðrum gögnum sem notandi hefur sent til stofnunarinnar í eftirfarandi tilgangi:

      1. Senda tilkynningar um ný bréf í Réttindagátt.

      2. Eiga í samskiptum við notendur um málefni þeirra eða í tengslum við önnur lögbundin verkefni stofnunarinnar, m.a. vegna framkvæmda þjónustukannanna sem Sjúkratryggingum er falið að gera í tengslum við eftirlit með gæði og öryggi heilbrigðisþjónustu.

  6. Rafræn samskipti

    1. Sjúkratryggingar eru markvisst að auka rafræna þjónustu, stuðla að bættu umhverfi og öryggi í samskiptum við notendur. Öll skjöl sem Sjúkratryggingar senda notendum eru birt í Réttindagátt. Um leið og skjöl birtast í Réttindagáttinni berst tilkynning til notanda með tölvupósti hafi notandi skráð netfang í Réttindagátt eða í stafræna pósthólfið hans á Ísland.is.

    2. Ef notandi vill ekki fá sendar tilkynningar á netfang sitt um ný skjöl í Réttindagátt þá getur viðkomandi breytt því undir Stillingar.

  7. Öryggi og varðveislutími

    1. Gerðar hafa verið viðeigandi tæknilegar og skipulagslegar ráðstafanir til að tryggja öryggi upplýsinga sem er að finna í Réttindagátt. Réttindagátt er varin gegnum vefsel og eru öll samskipti dulkóðuð.

    2. Upplýsingar í Réttindagátt eru varðveittar í ótilgreindan tíma.

  8. Skyldur Sjúkratrygginga

    1. Sjúkratryggingar eru ábyrgðaraðili að þeim upplýsingum sem er að finna í Réttindagáttinni. Ef um er að ræða upplýsingar sem eiga uppruna sinn hjá öðrum en Sjúkratryggingum ber viðkomandi ábyrgð á réttleika þeirra. Um vinnslu persónuupplýsinga í Réttindagátt fer eftir ákvæðum 50. gr. laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar, ákvæðum laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018 og eftir lögum nr. 97/1997 um réttindi sjúklinga, þegar við á. Farið er með allar upplýsingar í Réttindagátt þinni sem trúnaðarmál. Sjá nánar persónuverndarstefnu Sjúkratrygginga á heimasíðu stofnunarinnar.

  9. Annað

    1. Sjúkratryggingar áskilja sér rétt til endurskoðunar skilmála þessara án sérstaks fyrirvara eða viðvörunar.

    2. Við brot notanda á skilmálum þessum áskilja Sjúkratryggingar sér rétt til að loka á aðgang notanda að Réttindagáttinni og krefja hann um skaðabætur eða beita öðrum lögmætum úrræðum vegna tjóns er Sjúkratryggingar eða viðskiptavinir stofnunarinnar kunna að verða fyrir vegna brotsins.

    3. Gögn og upplýsingar í Réttindagátt gætu innihaldið persónuupplýsingar, þar á meðal viðkvæmar. Ef gögn hafa borist röngum viðtakanda ber þeim aðila að gæta fyllsta trúnaðar og tilkynna Sjúkratryggingum um það. Ekki má skrá gögnin hjá sér eða notfæra sér þau á nokkurn hátt, sbr. lög nr. 70/2022 um fjarskipti. Verði notandi var við slíkt skal upplýsa persónverndarfulltrúa Sjúkratrygginga tafarlaust í gegnum netfangið personuvernd@sjukra.is

Vakin skal athygli á því að öll virkni Réttindagáttar er að færast yfir á Mínar síður og er í dag öll almenn staða einstaklings komin þar inn undir Heilsa.