Aukið aðgengi að aðgerðum með nýju samkomulagi
16. október 2026
Klíníkin tekur við sjúklingum af biðlista Landspítala.

Sjúkratryggingar og Klíníkin Ármúla ehf. hafa gert samkomulag um að hefja framkvæmd efnaskiptaaðgerða á grundvelli gildandi samnings aðila um valdar aðgerðir utan heilbrigðisstofnana ríkisins. Sjúklingar sem uppfylla skilyrði Sjúkratrygginga og þurfa á slíkum aðgerðum að halda munu þannig geta fengið þjónustuna utan heilbrigðisstofnana á Íslandi með greiðsluþátttöku ríkisins.
„Það er mjög ánægjulegt að tekist hafi samningar um að fjölga þessum aðgerðum. Þetta skiptir miklu máli fyrir sjúklingana sem um ræðir. Með þessu er verið að nýta krafta alls heilbrigðiskerfisins, óháð rekstrarformi með áherslu á þarfir sjúklinga og aukið aðgengi að þjónustu“ segir Alma D. Möller heilbrigðisráðherra.
Samkvæmt samkomulaginu verður Klíníkinni heimilt að framkvæma allt að 40 efnaskiptaaðgerðir til áramóta. Um er að ræða magahjáveituaðgerðir en samkomulagið tekur einnig til magaermisaðgerða, að fengnu fyrirfram samþykki Sjúkratrygginga. Í upphafi mun Klíníkin eingöngu taka við einstaklingum sem þegar eru á biðlista Landspítala eftir þessum aðgerðum. Þá munu Sjúkratryggingar jafnframt fara yfir fyrirliggjandi umsóknir um efnaskiptaaðgerðir erlendis með hliðsjón af auknu framboði meðferðar hér á landi.
Með samkomulaginu fjölgar þeim leiðum sem sjúklingar hafa að efnaskiptaaðgerðum hérlendis. Með því er stigið frekara skref í að nýta samninga Sjúkratrygginga til að auka aðgengi að heilbrigðisþjónustu og stuðla að betri nýtingu þeirrar þjónustugetu sem er til staðar í heilbrigðiskerfinu.
Aukið aðgerðamagn til áramóta
Sjúkratryggingar hafa aukið aðgerðamagn í tengslum við gildandi samninga við Klíníkina Ármúla og Orkuhúsið um valdar aðgerðir utan heilbrigðisstofnana ríkisins. Um er að ræða fjölgun bakaðgerða, liðskiptaaðgerða og kviðsjáraðgerða, sem er liður í því markmiði að stytta bið eftir heilbrigðisþjónustu og nýta betur þá þjónustugetu sem viðsemjendur stofnunarinnar hafa yfir að ráða.
