Fara beint í efnið
Sjúkratryggingar Forsíða
Sjúkratryggingar Forsíða

Sjúkratryggingar

Frá áramótum verður eingöngu tekið við rafrænum reikningum vegna hjálpartækja og næringar

9. nóvember 2026

Frá og með 1. janúar 2027 munu Sjúkratryggingar eingöngu taka á móti rafrænum reikningum vegna hjálpartækja og næringar.

Breytingin er liður í að einfalda og hraða afgreiðslu reikninga, fækka villum og bæta þjónustu við seljendur og notendur.

Sjúkratryggingar hvetja alla seljendur hjálpartækja og næringarvara til að tryggja að þeir séu tilbúnir að senda rafræna reikninga fyrir 1. janúar 2027. Þeir sem eiga eftir að skila inn vörulistum eða koma á rafrænni reikningatengingu eru hvattir til að gera það sem fyrst.

Hraðari afgreiðsla og færri villur

Ávinningur af því að senda reikninga rafrænt eru:

  • Réttindastaða einstaklinga uppfærist hraðar

    eftir útgáfu reiknings og dregur þannig úr áhættu á að sama heimild sé nýtt oftar en einu sinni.

  • Færri villur og óþarfa endursendingar

    þar sem ekki er hægt að senda inn reikning nema gild heimild sé til staðar.

  • Hraðari greiðslur til seljenda

    þar sem reikningar eru að jafnaði greiddir innan fárra daga.

  • Einfaldara og skilvirkara ferli

    þar sem umsýslu við móttöku og afgreiðslu reikninga minnkar.

  • Yfirlit yfir stöðu reikninga

    þar semhægt er að sjá hvar reikningar eru staddir í ferlinu.

Breytingin dregur þannig úr handvirkri umsýslu, einfaldar samskipti og stuðlar að skilvirkari þjónustu.

Seljendur hvattir til að undirbúa breytinguna

Aðlögunartímabili vegna innleiðingar rafrænna reikninga er nú að ljúka. Frá áramótum verður því ekki lengur hægt að senda reikninga á pappír eða sem PDF-skjöl í gegnum skjalaskil í Gagnagátt Sjúkratrygginga.

Seljendur hjálpartækja og næringarvara eru hvattir til að ljúka nauðsynlegum undirbúningi fyrir áramót. Mikilvægt er að allir seljendur hafi skilað inn vörulistum, enda þurfa vörur að vera skráðar í vörulista Sjúkratrygginga áður en hægt er að senda inn rafræna reikninga.

Tvær leiðir til að senda rafræna reikninga

Seljendur geta valið á milli tveggja leiða til að senda Sjúkratryggingum rafræna reikninga:

1. Gagnagátt Sjúkratrygginga

Hægt er að skrá reikninga beint í Gagnagátt í sérstöku viðmóti undir Skjalaskil – Hjálpartækjareikningur. Leiðbeiningar um skráningu reikninga eru aðgengilegar seljendum.

2. Vefþjónustutenging

Með vefþjónustutengingu er hægt að senda reikninga beint úr tölvukerfi seljanda yfir í kerfi Sjúkratrygginga. Sú leið er sérstaklega hentug fyrir seljendur sem senda inn mikinn fjölda reikninga og vilja einfalda og sjálfvirknivæða ferlið.

Ýmsir hugbúnaðaraðilar bjóða nú þegar upp á slíka tengingu. Seljendur sem vilja þróa eigin lausn geta einnig fengið aðgang að tæknilýsingu vefþjónustunnar á sérstöku Teams-/SharePoint-svæði.

Nánari upplýsingar og aðstoð: Fyrirspurnum má beina á netfangið hjalp@sjukra.is.