Mat á meðferð erlendis
10. júlí 2026
Sjúkratryggingar taka reglulega til meðferðar mál sem varða greiðsluþátttöku vegna læknismeðferðar erlendis
Samkvæmt lögum um sjúkratryggingar getur greiðsluþátttaka komið til álita þegar sjúkratryggðum er brýn nauðsyn á viðurkenndri meðferð sem ekki er unnt að veita hér á landi.
Slík mál eru oft nefnd siglingamál og fela í sér að einstaklingur er sendur erlendis til afmarkaðrar greiningar eða meðferðar sem ekki er í boði innanlands. Markmið þessa fyrirkomulags er að tryggja aðgang að nauðsynlegri sérhæfðri þjónustu þegar hún er ekki aðgengileg hér á landi. Reglurnar taka hins vegar almennt ekki til langtímameðferðar eða viðvarandi eftirlits erlendis.
Við mat á slíkum málum er byggt á faglegu og hagrænu mati í samræmi við lög og viðurkenndar alþjóðlegar aðferðir. Mál eru almennt unnin í samstarfi við Landspítala sem sérhæfðustu heilbrigðisstofnun landsins. Til grundvallar liggur þá mat sérfræðinga um að þörf fyrir meðferð sé brýn, að um gagnreynda meðferð sé að ræða sem réttlætanleg sé með tilliti til ávinnings og kostnaðar og að ekki sé mögulegt eða hagkvæmt að veita meðferðina hér á landi. Jafnframt er mikilvægt að umsókn njóti stuðnings þess sérfræðiteymis sem ber ábyrgð á meðferð viðkomandi sjúkdóms eða ástands.
Við meðferð mála er horft til vísindalegra gagna, klínískra leiðbeininga, reynslu annarra ríkja og stöðu meðferðarinnar innan opinberra heilbrigðiskerfa þeirra landa sem Ísland ber sig helst saman við. Sjúkratryggingar afla jafnframt þeirra gagna og umsagna sem nauðsynlegar eru til að taka upplýsta ákvörðun hverju sinni.
Sjúkratryggingar leggja áherslu á að ákvarðanir um meðferð erlendis byggi á traustum faglegum grunni, gagnreyndri þekkingu og skýrum lagaramma, með það að markmiði að tryggja sjúkratryggðum aðgang að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu með hag þeirra og samfélagsins að leiðarljósi.
