Langtímasamningur um endurhæfingu við Heilsustofnun NLFÍ undirritaður
2. júlí 2026
Heilbrigðisráðherra, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands og forstjóri Heilsustofnunar NLFÍ undirrita nýjan fjögurra ára þjónustusamning um sérhæfða endurhæfingu.

Heilbrigðisráðherra, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands og forstjóri Heilsustofnunar NLFÍ undirrituðu í dag nýjan fjögurra ára þjónustusamning um sérhæfða endurhæfingu.
Samningurinn markar mikilvægt skref í að efla stöðugleika og fyrirsjáanleika í þjónustu við einstaklinga sem þurfa á sérhæfðri endurhæfingu að halda. Hámarksfjárhæð samningsins nemur tæpum 1,5 milljörðum króna á ári. Með samningnum er tryggður traustur grunnur fyrir áframhaldandi uppbyggingu þjónustunnar en síðasti samningur var gerður árið 2019.
Alma D. Möller, heilbrigðisráðherra, segir að endurhæfing sé lykilþáttur í öflugu heilbrigðiskerfi. „Heilsustofnun NLFÍ hefur um áratugaskeið gegnt mikilvægu hlutverki í endurhæfingu hér á landi. Með þessum langtímasamningi skapast aukinn stöðugleiki sem gerir stofnuninni kleift að þróa þjónustuna áfram og tryggja að einstaklingar um land allt hafi aðgang að öflugri og sérhæfðri endurhæfingu.“
Áhersla á gæði, árangursmælingar og sveigjanleika
Samningurinn tekur til sérhæfðrar þverfaglegrar endurhæfingar á fjölbreyttum sviðum, meðal annars vegna stoðkerfis-, tauga-, krabbameins-, geð- og hjartasjúkdóma auk offitu- og efnaskiptasjúkdóma. Meðferðarlotur eru að jafnaði fjórar vikur og byggja á heildstæðri teymisvinnu þar sem meðal annars er nýtt sérhæfð aðstaða stofnunarinnar, þar á meðal sundlaug, sem er mikilvægur þáttur í endurhæfingunni.
Samningurinn veitir aukinn sveigjanleika til að mæta breytilegri eftirspurn milli meðferðarteyma. Jafnframt er lögð rík áhersla á gæði þjónustunnar, árangursmælingar og áframhaldandi þróun greiðslufyrirkomulags sem styður við skilvirka og árangursríka endurhæfingu.
Sigurður H. Helgason, forstjóri Sjúkratrygginga, segir samninginn mikilvægan fyrir bæði einstaklinga og heilbrigðiskerfið. „Endurhæfing skiptir miklu máli fyrir lífsgæði fólks og getur dregið úr þörf fyrir frekari heilbrigðisþjónustu síðar. Með langtímasamningi skapast betri fyrirsjáanleiki fyrir rekstur þjónustunnar og jafnframt svigrúm til að þróa greiðslufyrirkomulag og efla gæði og árangur meðferðar.“

Frumkvöðlar í áratugi og mikilvægur hlekkur í íslensku heilbrigðiskerfi
Heilsustofnun NLFÍ hefur í áratugi gegnt mikilvægu hlutverki í íslensku heilbrigðiskerfi og er leiðandi á sviði endurhæfingar. Stofnunin hefur verið frumkvöðull í þróun þverfaglegrar endurhæfingar og mats á árangri meðferða og hefur byggt upp öfluga þekkingu og reynslu sem nýtist einstaklingum víðs vegar að af landinu. Náttúrulækningafélag Íslands hefur frá upphafi verið bakhjarl starfseminnar og átt stóran þátt í uppbyggingu hennar.
Þjónustan byggir á þverfaglegri teymisvinnu þar sem heilbrigðisstarfsfólk úr ólíkum fagstéttum vinnur saman að því að meta þarfir hvers einstaklings og setja fram heildstæða meðferðaráætlun. Markmið endurhæfingarinnar er að bæta líkamlega og andlega heilsu, efla sjálfsbjargargetu og styðja einstaklinga til virkari þátttöku í daglegu lífi. Dagskráin er jafnframt byggð upp þannig að þátttakendur öðlist aukinn skilning á eigin heilsufari og læri aðferðir til sjálfshjálpar sem nýtast að endurhæfingu lokinni.
Þórir Haraldsson, forstjóri Heilsustofnunar NLFÍ, fagnar samningnum. „Þessi samningur er mikilvæg viðurkenning á því starfi sem unnið hefur verið hjá Heilsustofnun NLFÍ í áratugi. Hann veitir okkur fyrirsjáanleika og gerir okkur kleift að halda áfram að þróa þjónustuna, byggja á þeirri þekkingu sem hefur skapast og veita einstaklingum heildstæða endurhæfingu sem tekur mið af þörfum hvers og eins. Þannig getur okkar frábæra starfsfólk áfram sinnt endurhæfingu um 1.350 einstaklinga á ári og þannig bætt líðan og lífsgæði þeirra.”
Samningurinn gildir frá 1. janúar 2026 til 31. desember 2029.
