Nýir framkvæmdastjórar ráðnir til Sjúkratrygginga
12. júní 2026
Gengið hefur verið frá ráðningu tveggja nýrra framkvæmdastjóra hjá Sjúkratryggingum. Steinunn Hlíf Sigurðardóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Þjónustu og Margrét Björk Svavarsdóttir framkvæmdastjóri Fjármála og eftirlits.

Margrét Björk Svavarsdóttir – framkvæmdastjóri Fjármála og eftirlits
Margrét Björk kemur til starfa hjá Sjúkratryggingum með víðtæka reynslu af opinberum fjármálum, stefnumótun og rekstri innan heilbrigðiskerfisins. Hún hefur meðal annars starfað sem framkvæmdastjóri fjármála hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands, sérfræðingur í heilbrigðisráðuneytinu og leiðandi sérfræðingur í Fjármála- og efnahagsráðuneytinu.
Í fyrri störfum hefur hún unnið að fjölbreyttum verkefnum á sviði fjármálastjórnunar, áætlanagerðar, gagnagreiningar og rekstrargreiningar. Margrét er hagfræðingur að mennt og með meistaragráðu í heilsuhagfræði.
Steinunn Hlíf Sigurðardóttir – framkvæmdastjóri Þjónustu
Steinunn Hlíf hefur yfirgripsmikla stjórnunar- og leiðtogareynslu úr fjármála-, trygginga- og þjónustuumhverfi. Hún hefur meðal annars gegnt stjórnendastörfum hjá Arion banka, Verði tryggingum, Landsbankanum og Sjóvá. Á starfsferli sínum hefur Steinunn Hlíf leitt verkefni á sviði þjónustu, reksturs, stafrænnar umbreytingar, gagnavinnslu og sjálfvirknivæðingar. Hún hefur lagt sérstaka áherslu á notendamiðaða þjónustu, skilvirkni og góða upplifun notenda. Steinunn Hlíf er með B.A.-gráðu í viðskiptafræði með aukagrein í hagfræði frá Flagler College og hefur auk þess sótt fjölbreytta leiðtogaþjálfun á sviði stefnumótandi forystu.
Þann 1. apríl síðastliðinn tók nýtt skipurit gildi og þau Áslaug Hulda Jónsdóttir og Elmar Hallgríms Hallgrímsson tóku við sem framkvæmdastjórar Þróunar og Samninga. Forstjóri Sjúkratrygginga er Sigurður H. Helgason. Meira hér: Nýir framkvæmdastjórar og nýtt skipurit | Sjúkratryggingar
