Greiðslukerfi framtíðar og fjármögnun heilbrigðisþjónustu
1. júní 2026
Sjúkratryggingar standa fyrir ráðstefnu um þróun greiðslukerfa og fjármögnun heilbrigðisþjónustu í heilbrigðiskerfum.

Sjúkratryggingar standa fyrir ráðstefnu um þróun greiðslukerfa og fjármögnun heilbrigðisþjónustu í heilbrigðiskerfum. Markmið ráðstefnunnar er að efla sameiginlegan skilning á ólíkum greiðsluleiðum í heilbrigðisþjónustu og ræða hvernig þróa megi fjármögnun heilbrigðiskerfisins til framtíðar.
Sérstök áhersla er lögð á DRG-greiðslukerfi (Diagnosis Related Groups), sem hefur verið notað við fjármögnun sjúkrahúsþjónustu á Íslandi um árabil, auk nýrra og þróaðri greiðsluaðferða sem byggja á gæðum, árangri og þörfum sjúklinga.
Fjallað verður um reynslu annarra landa, þróun DRG-kerfa, kostnaðargreiningar, hvata í heilbrigðiskerfum og nýjar leiðir við fjármögnun heilbrigðisþjónustu.
„Það er mikilvægt að Ísland fylgist vel með þróun alþjóðlegra greiðslukerfa og læri af reynslu annarra landa. Markmið ráðstefnunnar er að skapa vettvang fyrir faglega umræðu um fjármögnun heilbrigðisþjónustu þannig að við getum aukið gagnsæi og nýtt fjármuni sem best til hagsbóta fyrir sjúklinga og samfélagið í heild.“ segir Sigurður H. Helgason, forstjóri Sjúkratrygginga.

Meðal fyrirlesara eru fjórir alþjóðlegir sérfræðingar sem hafa víðtæka reynslu af hönnun, innleiðingu og þróun greiðslukerfa í heilbrigðisþjónustu.
Jeff Hatcher er framkvæmdastjóri greiningar og gagnavísinda hjá Canadian Institute for Health Information (CIHI)
Kristiina Kahur er forstjóri Nordic Casemix Centre. Hún er læknir með framhaldsmenntun í lýðheilsu.
Kristin Dahlen er verkefnastjóri hjá norsku heilbrigðisstofnuninni (Norwegian Directorate of Health) og sérfræðingur í virkni- og afkastatengdri fjármögnun heilbrigðisþjónustu.
Eileen Robertson er heilsuhagfræðingur með víðtæka reynslu af stefnumótun, fjármögnun og þróun heilbrigðisþjónustu í Bretlandi og Ástralíu.
Ráðstefnan er ætluð breiðum hópi þátttakenda og snýr að stefnumótun, alþjóðlegri reynslu og framtíðarsýn fyrir íslenskt heilbrigðiskerfi, mögulega uppbyggingu, þróun og framtíðarsýn fyrir íslenska DRG-fjármögnun.
Ráðstefnan fer fram á Hilton Reykjavík Nordica og sækja hana eru fulltrúar frá Heilbrigðisráðuneytinu, Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, Embætti landlæknis, Landspítala, heilbrigðisstofnunum víða um land, Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu, Sjúkratrygginga og fleiri lykilaðila í íslensku heilbrigðiskerfi.
